Velkomin á bloggið mitt
    <language>is</language>
Rjúpnatíminn
      <description>Þá er þessum dögum lokið sem mátti veiða þetta haustið og var veður ansi risjótt og voru bara 2 góðir dagar.  Það er áberandi lítið af fugli á Vesturlandi og þurfti að hafa mikið fyrir því að ná í jólamatinn.En þetta er alltaf jafngaman, síðasti dagurinn var albestur 10 stiga frost, bjart og logn svo maður naut náttúrunnar alveg í botn og þá er nú tilganginum náð . María</description>
Ferðalag á vestfirði
      <description>Ég er búin að vera  ótrúlega löt að skrifa færslur á bloggið mitt, en nú fórum við vestur í Bolungarvík í brúðkaup hjá Brynju Dís  sem er bróðurdóttir bóndans og Ella Bjössa Halldórssonar sem er útgerðarmaður á Bolungarvík og ákváðum við að taka okkur 10 daga frí og ferðast svolítið um og er ég nú búin að setja inn nokkrar myndir og mun ég setja  þær inn eftir því sem tími vinst til  :)  M</description>
Ótitlað
      <description>Fórum í bíltúr í gær að Kleifarvatni í köldu en fallegu veðri , var Einar Geir með okkur og var mjög gaman. Tók nokkrar mydir. </description>
Kaup á landi 8.nóv 2013
      <description>Það var lengi búinn að vera draumur okkar að kaupa hektarann sem húsið okkar stendur á í Sanddal, og rættist sá draumur á fimmtudaginn, þegar Hraunhamar í Hafnarfirði gekk frá kaupunum okkar.Við vorum búin að gera nokkur tilboð meðan Lífsval var og hét en okkur var alltaf hafnað, svo talaði ég við Magnús Leopoldsson og taldi hann að vonlaust væri að gera tilboð nema fyrir milljónir svo maður gaf hann upp á bátinn.Fór svo til Hlyns  hjá Hraunhamri og var hann alveg til í að tala við núverandi eigendur Lífsvals sem er Höldur dótturfélag Landsbankans og Jón Steingrímsson stjórnarformaður Haldar gerði okkur gagntilboð sem okkur þóttir mjög gott og alveg innan þeirra marka sem við vorum búin að gera okkur.Svo nú erum við nýustu landeigendur í Sanddal og hafa ekki verið nýir eigendur þar síðan 1923 þegar Sanddalstungan var keypt.Kíktum á heiðin, fengum frekar lítið og var ekki mikið af fugli en við erum komin með nóg fyrir okkur. M</description>
Tvær helgar í október
      <description>Við vorum í Sanddalnum um síðustu helgi og þá gróf Sigurgeir fyrir Húsinu sem við ætlum að reisa þar , það verður um 10 fermetrar og er bjálkahús. Það var yndælisveður og ég setti niður um 200 lauka svo er bara að sjá hvort mýsnar éti þá alla upp núna.Annars var ekkert um að vera í dalnum nema það flugu tvær flugvélar og voru sennilega að kíkja eftir kindum nú eða bara athuga hvort menn væru nokkuð farnir til rjúpna, en það var enginn á svæðinu að ég held.Svo fórum við í Sanddal á föstudaginn og gistum þar og héldum svo á Akureyri í fertugs afmæli Hafdísar og svo áttu Einar Geir og Helgi Þór líka afmæli og var heljarins veisla. Við fórum til baka í fallegu veðri um kvöldið í Sanddalinn.Fórum svo Grjóthálsinn og Hesthálsinn heim á leið í blíðskapar veðri. M</description>
Dannmörk
      <description>Við vorum í Dannmörk í viku og ferðuðumst töluvert. Fyrstu tvo dagana  vorum við í Kaupmannahöf og skoðuðum mannlífið og héldum upp á afmæli  Friðjóns, fórum út að borða á Hereford við tívolíið. Á mánudag tókum við  bílaleigubíl og skruppum til Hróarskeldu og skoðuðum okkur um þar og  fórum svo til Drageyrar og var það gaman. Á þriðjudegi fórum við  ströndina áleiðis til Gilleleje, stoppuðum fyrst í  Vedbæk og fylgdumst  með báti sem var að landa fiski og komu bæjarbúar með poka í hendi niður  á bryggju og keyptu fisk beint úr bát og virtist það vera alveg  löglegt, alla vega enginn skattmann. Síðan stoppuðum við í smá bæjunum á  leið til Helsingör en þar skoðuðum við Rósenborgarkastalann, þar gátum  við náð okkur í stöðumælasekt upp á  litlar 16. þúsund krónur. Svo  skoðuðum við Hellebæk en þar voru við svo óheppin að einhver keyrði utan  í bílinn hjá okkur og stakk af . Næst komum viðt til Hornbækog ætluðum  að borga sektina en þar var enginn banki..Svo fengum við okkur að borða í  Gilleleje og borguðum þar sektina. Þá var haldið til Hilleröd og  Freðriksborgarhöll skoðuð, næst var Birkeröd skoðuð og fannst okkur það  ótrúlega stór bær svona rétt við Köben. Enduðum svo daginn í kvöldmat  heima.Á miðvikudag var ákveðið að fara til Manar ,en eyjan Mön  liggur suðaustur af Sjálandi. Þetta eru tilkomumiklir kalksteinsklettar sem mætti vel kalla Dover Danmerkur. Við þurftum að  ganga niður 500 tröppur til að komast niður að sjó og eru þetta mjög  fallegir klettar.Skiluðum bílnum þennan dag. Fimmtudagur var  tekinn í verslanaleiðangur hjá okkur Soffíu og byrjuðum við við  Vesterbrugade og versluðum heilmikið þar, svo var Strikið rölt en ekki  mikið verslað þar eiginlega var alltof mikið af fólki í búðunum þar.  Sigurgeir og Friðjón tóku strætóbátinn og silgdu með honum fram og til  baka og sáu heræfingar og lúðrasveitarhljómsveit. Hittumst svo á strikinu.Gengum frá íbúðinni og röltum með töskurnar niður á Nýhöfn og sátum þar í sólinni fram eftir degi.Góð ferð og gaman.Takk félagar. M</description>
Dannmörk
Hreindýraferð 2013
      <description>Nú var haldið austur á land og gáfum við okkur  nægan tíma til að fara á hreindýr og skoða líka Austfirði sem við gerðum. En nú segi ég frá ferðinni þann 20 ág. þá var vaknað kl. 4.30 og gerðum við okkur klár og brunuðum svo inn í Hallormsstað og náðum þar í gædinn okkar Einar Axelson .Hengdum kerruna hans aftaní bílinn okkar og svo var sexhjólinu ekið upp á kerruna.Einar ákvað strax að fara inn að Snæfelli og fórum við þangað, og fórum svo upp á Langahnjúk að athugað með dýr, eftir smástund spyr Einar okkur hvort við sjáum steina þarna úti á sléttunni eiginlega við Krossfiskavatnið jú við sáum eitthvað þar og var hann ákveðinn í að þetta væru dýr. ákváðum samt að fara upp á Bjálfa og athuga með útsýni þar, en þá var svo mikið rokið að við sáum ekkert enda þurftum við að ganga frá asnalegu bílaplani og fram á brún til að reyna að sjá,¨ ekki hefði ég boðið öldruðum eða fótafúnum að fara þessa leið í stórgrýtinu¨, held að þessir  þjóðgarðsverðir verði að fara að endurskoða allar sínar áætlanir .Eða gengur ekki jafnt yfir alla í svona þjóðgörðum? Það ætti að hafa plönin þannig að allir komist með sínu farartæki fram á brún, eða er þetta bara fyrir fótgangandi  fólk úr 101.Næst ætluðum við að fara gamlan slóða niður að skálanum við Sauðána en þar var búið að setja kerru fyrir og tikynna lokun tímabundið vegna bleitu sem var í vor, löngu þornuð.Forðuðum okkur í snarhasti úr þessum Þjóðgarði og fórum upp að Hálsalóni og ókum svo eftir vegi Landsvirkjunar, sáum dýrin mjög fljótlega aftur og fórum að reyna að nálgast þau, en þau lágu öll nema ein belja sem var á útkíkkinu svo lagði hún sig líka svo við skriðum af stað og fórum svona 2 kílómetra og vorum komin í þokkalegt færi svona frá 170 til 200 metra, það var hífandi rok og -1 í frosti.Við biðum þarna í ca 1 til 2 tíma og stóð eitt og eitt dýr upp öðrukvoru, en svo reis upp belja sem mér leist vel á og sendi  ég henni eitt skot og féll hún steindauð til jarðar, þessi hópur sem hún var í hefur verið svona 140-160 dýr, Svo förum við að gera að dýrinu og koma því niður í bíl, sjáum við þá ekki .4-600 dýra hóp sem stefndi bara á Hálsalónið og það voru að koma þarna strákar til að fara í þessa hópa. Allt búið hjá okkur um hádegi og stefnan tekinnt il Hjartar í Skóghlíð.Fín ferð og góður gæd. M</description>
Verslunarmannahelgi 2013
      <description>Fórum í Sanddalinn á föstudag og var fallegt veður þegar við komun og vorum við að vinna fram eftir kvöldi en á laugardag var komið hífandi rok en en ágætis veður samt.Sigurgeir kláraði vegginn sem eftir var og gerði síðan göngustíg á bak við hús það þurfti að flytja grjót og stinga upp torf og setja möl í og er orðið mjög fínt. ég flutti nokkrar birkiplöntur sem voru búnar að sá sér hjá rósunum mínum og fór ég með þær upp í holt og ætla að athuga hvort þær plummi sig þar, en hætt er við að rollan éti þau.Á sunnudag fórum við að Erpstöðum og ætluðum að kaupa kjöt hjá bónda en ekkert var kjötið til og litlar upplýsingar að fá hjá erlendri afgreiðslustúlku sem kunni ekki eitt orð á íslensku.Fórum svo Haukadalinn og að Eiríksstöðum og svo yfir Haukadalsskarðið og var vegurinn bara fólksbílafær, mikið búið að laga hann.Bæði sunnudag og mánudag var rok og skítakuldi fór í 4°. M</description>
Þjórsárdalurinn
      <description>Við ákváðum að skella okkur í dagsferð í Þjórsárdalinn á laugardagsmorgni og fórum Nesjavallaleiðin og brást hún ekki, mjög falleg, flott veður .Byrjuðum á að skoða Hjálparfossa og eru þeir ótrúlega fallegir og fólk var að sulla og baða sig þar en þeir eru í Fossá rétt við Búrfellsvirkjun..Fórum svo og skoðuðum Gjána en hún er fyrir ofan Stöng í á sem heitir Rauðá og er umhverfið bara hreint frábært og fegurðin ólýsanleg, eyddum við tíma fram eftir degi þar og var mikið myndefni .Næst ákváðum við að keyra upp á Búrfell  sem er 670 metra hátt og gekk það vel þó efsta brekkan væri brött og laus í sér. Skoðuðum okkur þar um í smá tíma . Ætluðum svo að skoða laug sem Sigurgeir hafði heyrt af en fórum eftir landakorti og var það ekki réttara en það að við keyrðun inn með Sandá og yfir hana upp í fjöllin og fundum þar fjallakofa sem heitir Klettur. Fórum svo til baka og fórum hinn afleggjarann og komum þá að Reykholtslaug sem ekki er í notkun en hefur samt verið töluverðu til kostað í hana, heyrði að starfsmenn í Búrfellsvirkjun hafi gert hana á sínum tíma og er hún dálítið sérstök fyrir það að hún er aflýðandi frá öllum bökkum og sennilega hentug fyrir hjólastólafólk. En nú er þetta allt í niðurníðslu.Þegar við vorum þarna stödd gerði alveg hrikalegar þrumur en engar eldingar.Fórum svo Lyngdalsheiðina til Þingvalla og vorum þar fram eftir kvöldi .Komum heim um miðnætti. M</description>
Jílí 2013
      <description>Við höfum verið dugleg að fara upp í bústað og fengið mjög góð veður þar í þessum mánuði.Erum búin að smíða pall við suðurenda hússins , slá og gróðursetja.En hér í bænum var bara rigning fram að 21. júlí en þá kom blíða og er maður búinn að njóta hennar.Fór með Soffíu mágkonu í göngu upp að steini í Esjunni, en ég held að ég sé með einhverja esjuveiki því þegar ég er komin í 100 metrana byrjar mig að svima og er þannig alla leið upp að steini og er lítið betri á niðurleið. M</description>
Sumarið komið
      <description>Þá kom sumarið loks til okkar þegar við fórum upp í bústað 11.júní og vorum við þar í 5 daga í einmuna blíðu. Næst var ferð 20.júní í Borgarfjörðinn með Lífeyrisdeild SFR og var mjög gaman.  Þetta var 130 manna hópur og fórum við fyrst í Hallgrímskirkju í Saurbæ á Hvalfjarðaströnd svo var farið í Borgarnes og söfnin þar skoðuð, borðuðum nestið okkar að Fossatúni , siðan lá leiðin að Deildartunguhver, svo í Reykholt og næst í Húsafell og spilaði Páll þar á steinpíanóið, svo var farið að Háafelli og geiturnar skoðaðar, síðan bauð SFR okkur í mat í Munaðarnes. Komum heim um kl. 22.00Núna um helgina fórum við í Þórsmörk, Fljótshlíðina og komum við á Eyrabakka, góður dagur.Nú bíður maður eftir næstu helgi. M</description>
Allt að lagast
      <description>Nú er Einar Geir kominn heim af spítalanum og hefur það sæmilegt, að vísu með töluverðan höfuðverk og verður svo í einhverjar vikur, stefnan er tekin á heimferð á miðvikudag og gengur vonandi vel. M</description>
      <description>Aðgerðin á Einari Geir tókst mjög vel og ekkert óvænt kom uppá þannig að hann gæti komið heim á morgun og farið keyrandi norður á þriðjudag, því hann má ekki fljúga, svo er bara að sjá til hvernig framhaldið verður og vonandi gengur allt vel. Spurning hvort hann geti haldið áfram í fótboltanum.En senn fer þesari annasömu viku að ljúka, svo fer maður í dalinn og slakar á.Vorið á næsta leiti. M</description>
Norðanfólk
      <description>Nú er Dísa og fjölskylda hjá okkur þar sem Einar Geir þarf að fara í heilauppskurð vegna vökva sem safnast fyrir í höfðinu á honum og halda læknarnir að hægt sé að lagfæra það með því að víkka út frárennslisrásina úr höfðinu og er það töluvert mikil aðgerð sem er frekar hættuleg, en vonandi gengur allt vel. Förum í dag og hittum lækninn og verður þá ákveðinn dagur til aðgerðar.Að öðru leiti er allt gott að frétta, ég bíð eftir að komast í skotpróf fyrir hreindýraveiðina en ég fékk úthlutað kú á svæði tvö. M</description>
Páskar 2013
      <description>Við vorum í Sanddalnum um páskana í blíðskaparveðri, logni, sól og 10°hiti.Vorboðarnir komu hver af öðrum inn dalinn, álftir, gæsir, endur, fálkar og krummar sem eru nú fastir gestir, en það er langt síðan við höfum séð fálka og hvað þá tvo. Það var ekki fjölmennt í húsunum í dalnum , var verið í 3 bústöðum.Fórum upp á heiði og kíktum á útburðinn hjá refahúsinu og var ekki mikið gengið í hann, veit ekki hvort Valdi sé enn í þessu. Fórum svo upp í mastur og var enginn snjór á þeirri leið.Á Hraunsnefi var verið að rífa íbúðarhúsið, en þar brann nú fyrir margt löngu og var þá byggt lítið hús sem svo var búið að byggja við, svo sennilega hefur ekki verið þörf á að rífa það.Það verður nú trúlega lítið vatn í ánum í sumar eftir svona snjóléttan vetur, en það er enginn snjór í fjöllum.Sigurgeir for í skógarhögg og tók niður 20 ára rússalerki sem var farið að skyggja á útsýnið niður að á, en svona er þetta maður potar niður plöntum í fjölda ára svo þarf að grisja.Góð helgi. M</description>
16-17.02.2013
      <description>Kíktum í afmæli til Heiðars það var ansi gott, súpa, kaffi og kökur.Fórum svo á sunnudeginum í bíltúr upp í Kaldársel, Sléttuhlíðina og að Hvaleyrarvatni en við vatnið  ef vatn skyldi kalla var svo mikil drulla að það var vonlaust að ætla að gang kringum það bæði, akvegur og göngustígar voru ógeðslegir.Lentum svo í pönnukökukaffi hjá Hrönn. M</description>
Þorrinn
      <description>Þá er þorrinn vel hálfnaður og maður er búinn að eta mikið af þorramat.Var á þorrablóti í gær hjá Lífeyrisdeild SFR og var góð mæting og mikill matur, harmonikkuspil, söngur, upplestur og mælt fyrir minni kvenna.Í dag kíktum við í bollukaffi til Soffíu og hittum þar fyrir Kalla og Hafrúnu svo byrtust Stefán og Díana, svo það var bara glatt á hjalla.Svo förum við í afmæli á laugardaginn til Heiðars, þannig að það eru eilíf veisluhöld.Annars er allt í rólegheitum M</description>
Hreindýr
      <description>Ósköp finnst mér UST standa ófagmannlega að upplýsingum um úthlutun hreindýraveiðileyfa í ár,ekkert verð, ekkert talað um veiðiprófið og fyrir hverja eru svo þessar veiðar í nóvember, ætli ferðaþjónustan fái ekki úthlutað flest leyfin á þeim tíma, þá geta ferðabændur selt bæði á gæs og hreindýr á þessi svæði.Maður þarf að skoða vel póstnúmerin þegar úrdrátturinn fer fram.Ekki sækji ég um fyrr en verð liggur fyrir.Svo fannst okkur síðast þegar við fórum á hreindýr vera breytt framkoma hjá leiðsögumönnum og fannst okkur þeir sækjast eftir því að ná ekki dýri á fyrsta degi, það var bara keyrt upp í þokuna og dagurinn látinn líða þar þó bjart væri neðar.Fæ mér nýjan leiðsögumann næst.Mig minnir að ráðamenn landsins og þeirra fræðingar hefðu á sínum tíma talað um að virkjunarframkvæmdir á kárahnjúkasvæðinu mundu ekki hafa nein áhrif á hegðun hreindýra en mér sýnist nú að svæði 2 sé nánast að detta út sem veiðisvæði.Nú árið 2013 má veiða 56 kýr og 66 tarfa á svæði 2 en var 2012 á svæði 1 og 2  291 belja og 169 tarfar - svo eru núna 241 belja og 184 tarfar á svæði 7 sem var í fyrra 120 beljur  og  67 tarfar, þannig að á svæði 7 eru flest dýrin og virðast þau vera að færa sig austar á svæðunum.Þannig að það eru mikil áhrif sem virkjanirnar hafa haft á dýrin.Svo er maður bara í félagsmálunum þessa dagana, verð með upplestur á þorrablóti 9.febrúar hjá lífeyrisdeild  SFR.             Langar að fara að komast í bústaðinn, það er bara alltaf svo leiðilegt veður, rok og rigning, vantar frost og snjó.  svo er maður vel tengdurM</description>
Janúar
      <description>Gleðilegt ár og þökk fyrir liðin ár.Jæja, það er bara kominn janúar og maður hefur ekkert bloggað lengi. Við eyddum jólunum á Akureyri að venju og var það mjög fínt, mikill snjór og vetrarlegt, annað en hér á höfuðborgarsvæðinu sem er bara hiti dag eftir dag , þoka og rigning, það mætti halda að við séum að verða norsk.En nú bíður maður eftir snjó og frosti svo hægt sé að fara að leika sér upp í bústað.Að öðru leiti er ekki mikið að frétta, allir við þokkalega heilsu og allt í rólegheitum. M</description>
Rjúpan
      <description>Þá er maður búin að fara til rjúpna í fyrsta sinn á þessu ári.Fyrsti dagur var fallegur og kaldur, ákváðum að fara um mínar heimaslóðir og ókum áleiðis, svo var rölt um heiðarlöndin í nokkra klukkutíma. Sáum ekki mjög mikið af fugli, vorum að tína upp eina og eina og tvær og fimm  og svona, enduðum í 10 fuglum. Sáum svo einn hóp svona 30 fugla á hraðflugi seinnipartinn og hvarf hann okkur sjónum.  Á öðrum degi nenntum við ekki að fara vegna rigningar og þoku.Þriðja daginn kíktum við á heiðina og sáum engan fugl. Það voru nokkuð margir sem fóru frá mastrinu og gengu bæði suður heiði og norður en fáir skothvellir. Þeir menn sem við hittum sögðust ekki hafa séð mikið af fugli og voru menn að tala um 1 til 8 fugla. Undanfarin ár sýnist okkur hafa verið gengið mjög nærri rjúpnastofninum á Vesturlandi  og hefur Holtavörðuheiðin verið mjög auglýst bæði í fjölmiðlum og blöðum og ef fer sem horfir verður hann  sjálfsagt  útdauður þar, þá líklega opnar FRÚ umhverfisráðherra aðgengi að Landnámi Ingólfs og lætur  skipulega drepa stofninn þar eins og hún er búin að gera á Vestulandi.Frá því að þessi stýring á veiðum tók gildi tel ég að sportveiði sem slík hafi verið lögð af, það sem ég sakna er ekki magnveiðin heldur sportið að geta  farið þegar mér hentar  og þangað sem mér hentar en ekki láta smala öllum veiðimönnum á Holtavörðuheiði Bröttubrekku og almennt Vesturlandið. Hitti þrjá unga menn á Sunnudag og fórum við að spjalla og kom þá í ljós að þetta voru Húsvíkingar með tvo veiðihunda og sögðu þeir að það væri lítill fugl á heimaslóðum en höfðu  heyrt að það væri  mikill fugl á Holtavörðuheiði!!!!!Á þeim 35 árum sem ég hef gengið til rjúpna hef ég aldrei séð jafn lítið af fugli og í ár .Það er sjálfsagt að hafa sölubann og biðja veiðimenn að veiða hóflega en á lengri tíma t.d tvo mánuði.Það er alveg galið að senda 2-3000 manns upp til heiða jafnvel í vondum veðrum til ná sér í jólamatinn og tel ég það ekki vera umhverfisráðherra að þakka að enn hefur ekki orðið slys, en ef svo færi mætti hún hugsa sig um.</description>
Feðin suður
      <description>Á sunnudeginum á Akureyri fórum við með barnabörnin í Kjarnaskóg og var það mjög gaman, svo fórum við með Einari Halli inn í sveit, en hann hafði keypt sér lambaskrokk og þurfti að fá svolítið meira sagað og fórum við að bæjum sem heita Punktu, Komma og svo man ég ekki nafnið á þriðja bænum en það var ekki komma.Keyrðum svo í bæinn um kvöldið og norðurljósin óhemju falleg ,sérstaklega á Miðfjarðarhálsinum.Svo er rjúpan að byrja núna, veðurspáin slæm en við ætlum að kíkja. M</description>
Akureyri
      <description>Þá erum við stödd á Akureyri í blíðskaparveðri og þægilegheitum hjá okkar fólki, fórum á smá búðarrölt við mæðgurnar með Davíð Má og Hellga Þór, hinir strákarnir fóru að kíkja á Vaðlaheiðar framkvæmdir og skoða bæinn.  Frábær kvöldmatur í kvöld og svo horft á Marlin á ruv.issjáum til hvað við gerum á morgun...........:)M</description>
Pétursborg
      <description>Við hjónin ásamt Kalla og Hafrúnu fórum til Pétursborgar miðvikudaginn 26.sept, það var flogið til Helsinki og þaðan farið með rútu til Rússlands og var það fimm tíma ferð.Við urðum að fara í gegnum þrjú tollhlið og tók það töluverðan tíma, en seinagangurinn hjá þeim er víst vel þekktur.En ferðin gekk vel fyrir sig. Tímamunurinn er þar 4 tímar+Á fimmtudeginum var farin skoðunarferð  um miðbæinn og saga borgarinnar sögð og frá því helsta sem fyrir augu bar. Síðan var farið í virki Péturs og Páls en þar er Péturskirkja sem er ægifögur og grafir allar Romanov keisaraættarinnar og er allt þar gulli slegið og grafirnar úr eðalgrjóti eins og myndirnar sýna.Í Péturskirkju sungu 5 munkar fyrir okkur helgisöng með djúpum bassa.Í eftirmiddaginn fórum við í Nikolayevsky höllina sem er mjög flott höll og gullslegin, þessi höll var byggð á fyrri hluta 19 aldar fyrir Nikolay son Nikulásar I keisara. Þessi höll er talin ein ag fegurstu byggingum St.Pétursborgar.Þar sáum við ekta rússnenska skrautsýningu með kósakkadansi, balalæku spili, söng og fimleikum.Í hléinu var boðið upp á ¨léttar veitingar¨kampavín (sem var þrusu gott), vodka, snittur og smárétti.Um kvöldið borðuðum við á 8 hæðinni á hótelinu okkar en við gistum á Hotel Moskvu og var mjög góður matur þar.  Það sem við tókum einna fyrst eftir var hvað borgin er hrein og snyrtileg og afar fögur.Á föstudeginum var farið í Vetrarhöllina  og Hermitage safnið og eru listaverkin þar eftir frægustu listamenn heims eins og Pikasso, Rafaello, Micehangelo og sáum einnig styttu eftir Thorvaldsenmaður með hund.Við fórum úr rútunni við markaðinn, skoðuðum Blóðhöllina og er hún ótrúlegt listaverk öll lögð  mosaikflísum.Þaðan  röltum við upp á hótel, kíktum í búðarglugga og skoðuðum götulífið, borðuðum kjúkling á einum matsölustaðanna.Á laugardeginum fórum við og skoðuðum minnis merki um 900 daga umsátrið um Leningrad og varð maður hálf dapur þegar farið var í gegnum neðanjarðarbyrgið.Næst var farið í gosbrunnagarðinn í Peterhoff, höllin þar er ein af sumarhöllum Romanov ættarinnar  en garðurinn þar er mjög frægur og einstaklega fallegur og er talinn jafnvel fegurru en Versalagarðurinn.Næst var farið í Podvorija og snæddur kvöldverður að rússneskum sið, 5 rétta málsverður með vodka,léttvínum og skemmtiatriðum.Á sunnudeginum var dagskrá að eigin vali. Við byrjuðum á að BORGA okkur inn í kirkjugarðinn gamla en þar hvíla margir frægir rússar, skáld og listamenn og er alveg ótrúlegt hvað mikið hefur verið lagt í styttur og allt umkverfi þar en verið er að takaí gegn hinn garðinn.Þá tókum við Metróinn niður í bæ og ákváðum að skoða sumarhallargarðinn en lentum í svo mikilli úrhellisrigningu að það var ekki þurr þráður á okkur, en við létum okkur hafa það og voru þarna miklir gosbrunnar en ekki eins og í Peterhof, tókum svo metróinn heim aftur fengum okkur að borða og fórum snemma í háttin þar sem við þurftum að vakna kl.4 að morgni.Á mánudag lögðum við af stað heim á leið kl. 5 að morgni við vorum tvo og hálfan tíma að landamærunum og þegar komið var þar í gegn tóku við finnskar lendur, skógar og vötn .Við vorum tímalega komin í Helsinki svo við fengum bíltúr um bæinn og skoðuðum Klettakirkjuna sem í upphafi var notuð til að  geyma sprengjur í og svo var þessi staður einhvernveginn alltaf útundan þanga til einhverjum datt í hug að gera þar kirkju og var hún vígð 1961 og hefur haft töluvert aðdráttarafl fyrir ferðamenn. Næst var farið á flugvöllinn og svo flogið heim.Frábær ferð og eftirminnileg, höfðum einnig góðan fararstjóra sem býr í Pétursborg og heitir Pétur Óli Pétursson og er alveg hafsjór af fróðleik. M</description>
12.september
      <description>Jæja, það er búið að vera nóg að gera hjá mér undanfarið, við fórum á gæs um síðustu helgi og lentum í skítaveðri snjókomu og hiti við frostmark, en við fengum 5 fugla.Óvíst að við komumst aðra ferð vegna veðurs, nema einhver bjóði mér í góðan akur". í dag var ég á þingi Sambands lífeyrisþega ríkis og bæjar og var sett þar í stjórn sem ritari.Svo fer nú að líða að Rússlandsferðinni okkar, en við ætlum að eyða nokkrum dögum í Pétursborg og hlakkar mig mikið til, vonandi þarf ég ekki að drekka óblandaðan vodka þar.Það er óttalegt vesen að fá landvistarleyfi þar, mikil pappírsvinna og hlaup í sendiráðið, en vonandi þess virði. M</description>
Ágústmánuður
      <description>Það er búið að vera mikið að gera í þessum mánuði, við seldum húsið okkar í Logafoldinni og keyptum okkur íbúð í Ásakórnum á efstu hæð.Svo var farið í gegnum búslóðina og mörgu var fleigt og annað gefið, þetta var 30 ára safn af ýmsu dóti og viðbrigðin mikil að fara úr 4 svefnherbergjum í tvö, en nú er þetta allt komið í sæmilegan farveg hjá okkur þó maður sakni margs úr Logafoldinni, en hér höfum við meiri víðsýni.Nú ætti að fara að koma tími til að kíkja eftir gæs og slaka svolítið á.Gott að sinni. M</description>
Verslunarmannahelgin
      <description>Áttum  góða helgi í Sanddal, fallegt veður og mikið sullað í ánni af unga og eldra fólki líka .Vorum að bera á húsið og pallinn svo var slegið og tínd ber sem eru ótrúlega vel þroskuð.Annars allt í miklum rólegheitum.Gætu orðið erilsamar vikur framundan. M</description>
Ferð eldri borgara hjá SFR
      <description>HæÞað er orðið ansi langt síðan ég hef skrifað nokkuð, það er ekki af því að það sé ekkert um að vera.Það er bara búið að vera mikið að gera.Ég er búin að vera með barnabörn allan mánuðinn og á eftir að setja inn helling af myndum.En í gær var farin sumarferð eldri borgara hjá SFR og byrjaði ferðin á Grettisgötu 89 og lá leiðin austur fyrirfjall og haldið inn Fljótshlíðina stoppað að Breiðabólstað og kom presturinn Önundur Björnsson og hélt smá tölu um fyrrum presta og fleiri góða menn sem var gaman og fróðlegt. svo var haldið inn í Þórsmörk, vegurinn var slæmur, lítið vatn í ánum en þokkalegt veður, skýjað og gott ferðaveður.Þar borðaði fólk nestið sitt og skoðaði sig um, alltaf jafn fallegt í Mörkinni. Svo var aðeins kíkt inn í Stakkholtsgjá og þaðan var haldið á Hvolsvöll og bauð SFR okkur upp á flottan mat og rauðvín,Það varð eitt slys í ferðinni kona var að fara upp í rútu og skrikaði fótur , bar hún hendina fyrir sig og brotnaði únliður hennar við það, SFR var með hjúkrunarfræðing með í ferðinni og kom það sér vel og kom hún konunni til læknis fyrst á Hvolsvelli en var send þaðan á Selfoss.Frábær ferð með frábæru fólki.Borgin tók á móti okkur með sólstöðum.Takk M</description>
Vor
      <description>Jæja, nú er orðið langt síðan ég skrifaði síðast á síðuna. Hjá okkur hefur veturinn liðið nokkuð tíðindalaus og allir við sæmilega heilsu.Höfum farið nokkrum sinnum í dalinn og svo fórum við að Apavatni um páskana, skruppum líka á Akureyri í febrúar. Vorum í dalnum um síðustu helgi í góðu veðri, björtu en köldu nema í skjóli þar var hlítt og gott.Gerðum hefðbundin vorverk, girtum með ánni, fluttum tré og allt var viðrað svo nú má sumarið bara koma.Sáum töluvert af rjúpum svo var hrossagaukurinn kominn og maríuerlan gerði sig heimakona og lleitaði sér að hreiðurstæði, þrösturinn söng hástöfum og krummi kallinn kom og kíkti á matarpallinn.Við æfðum okkur í skotfimi (skeet) og höfðum bara gaman. M</description>
Þorrinn
      <description>Við áttum góða helgi í Sanddal, hylltum Þorra og goðin hans Kalla.Það var snjókoma og skafrenningur á leiðinni uppeftir en svo lagaðist veðrið með kvöldinu.Borðuðum þorramatinn hjá Kalla og Hafrúnu og vorum þar í góðu yfirlæti fram eftir kvöldi.Á Laugardag fórum við inn dal og upp að Gestsstöðum og þá þurfti að hleypa úr niður í 10 pund og gekk þá allt þokkalega.Sigurgeir gekk hlíðina og rak upp fyrst, 8 rjúpur svo 6 en þegar við komum niður í bústað flaug ein í fangið á okkur, sáum för og heyrðum gagg í einni tófu, heyrðum líka væl í fálka.Fín ferð.. M</description>
Ótitlað
      <description>Fórum til Borgarness í boði Soffíu, Friðjóns, Stefáns og Díönu, gistum að Hótel Hamri og fórum svo í Landnámssetrið og borðuðum góðan mat og sáum leiksýningu um Goðin sem Þór Tíliníus sagði frá og var það mjög gaman.Svo voru rædd málin í heita pottinum á eftir. M</description>
Brúðkaup
      <description>Engin rjúpa þessa helgina, mættum í brúðkaup Söndru og Helga og var það ansi skemmtilegt.Fór svo í axlaraðgerð á mánudagsmorgun og held ég að hún hafi gengið vel.Svo þá fer maður bara að hugsa til jól hvað úr hverju. Kannski kíkir bóndinn aftur á rjúpu. M</description>
Fyrsta helgi á rjúpu 2011
      <description>Fórum í dalinn á fimmtudagskvöldið. Það var fallegt veður á fyrsta degi, lítill snjór, vorum á austurheiðinni þann daginn sáum nokkra arfastygga fugla en náðum þremur .Okkur fannst ekki mikið skotið á heiðinni miða við að það voru 36 bílar vitt og breitt um heiðina svo sennilega hafa verið minnst 60 manns á veiðum, en oft var skotið 3 - 5 skotum í einni bendu svo sennilega hafa flestir lent á henni styggri.Á laugardag var mjög hvasst og slydda sáum 50 - 60 fugla ekki síður stygga en fyrri daginn en gekk sæmilega. Kíktum svo í Búrfellsdalina og fylltum þar kvótann eða þannig.Nú vantar frost, stillu og meiri snjó, þá verður gaman að skjóta á nokkrar myndir eða þannig. M</description>
Október 2011
      <description>Það hefur nú verið frekar rólegt hjá mér upp á síðkastið, er aðeins byrjuð með jólahreingerningar þar sem ég verð úr leik í nóv - des þar sem ég fer í axlauppskurð.Ætla að reyna að komast eina helgi til rjúpna áður. M</description>
Síðsumar
      <description>Vorum í Sanddal í nokkra daga í vikunni og var veðrið indælt, fórum á heiðina og kíktum eftir gæsum en það var mjög lítið flug og einu flugin sem við sáum voru háflug um eftirmiddaginn og svo ekkert á kvöldin. En það er alltaf jafn gaman að liggja við fjallavötn á fallegum síðssumarsdögum.Svo var spáin leiðinleg svo við komum heim á föstudagskvöldi.Kíkjum aftur fljótlega. M</description>
Hreindýr
      <description>1.sept var lagt upp í ferð austur á Hérað í hreindýraleiðangur.Í þessa ferð fórum við hjónin og sonur okkar Einar Hallur og fór hann til að skjóta sitt fyrsta hreindýr. Strax þegar komið var austur fyrir fjall kom blessuð þokan og var hún félagi okkar nánast allan tímann. Komum um kvöldið á Skipalæk en þar höfðum við fengið leigt lítinn A-bústað.Við mæltum okkur mót við leiðsögumanninn okkar Einar Axelsson upp úr kl. sex næsta morgun.Þegar til hans var komið á Hallormsstað drifum við okkur af stað þó útlitið væri frekar svart, þegar komið var upp að Kelduárlóni kom í ljós að gædinn hafði gleymt lyklunum af sexhjólinu heima svo þá var bara hægt að leggja því einhverstaðar.Síðan var byrjað að leita og fréttist ekkert af dýrum fram eftir degi en það voru margir á fjalli þennan dag.Upp úr miðjum degi hafði einn gædinn fundið hjörð nokkuð stóra og náði hann tveimur dýrum úr henni og lét okkur svo vita á hvaða slóðum hún væri.Upphófst nú mikil ganga sem 5 manns voru í, þar af 3 veiðimenn og fannst hjörðin eftir mikla leit, þegar menn komust í skotfæri varð einhver misskilningur en Einar Hallur átti rétt á fyrsta dýri, en einhverra hluta vegna skutu menn hins leiðsögumannsins fyrst á hópinn og náðu sýnum tveimur dýrum og var þá ekki um annað að ræða fyrir þá nafna Einar Hall og Einar Axels að elta hópinn og lentu þeir í ýmsum ævintýrum við það, dýrin krossuðu árnar og á endanum týndu þeir hjörðinni upp í þokuna og komu svo öslandi blautir og kaldir niður í bíl búnir að ganga 40-50 km.Næsta morgun var vaknað kl.5.00 og lagt á heiðina en núna með lykla af sexhjólinu í farteskinu, ekki var skyggnið betra þennan daginn, farið var upp á Grjótárhnjúk og beðið eftir einhverri glufu í þokunni til að sjá yfir svæðið, en svo sást ekkert þar , farið var upp að Sauðárvatni og voru nokkrir bílar þar samankomnir en engin dýr sáust og svo var leitað og leitað en ekkert gekk. Svo fréttist af nokkrum beljum við skálann á Geldingarfelli og brunuðu menn þangað, þegar á staðinn var komið spáðu menn í hvað best væri að gera og var ákveðið, þar sem þokan var svo dimm, að veiðimennirnir skyldu skjóta saman allir þrír , fór svo einn bíll með þrjá veiðimenn og tvo gæda yfir árnar Kelduá og Blöndu og komust þeir í gott færi upp á klettum og 1.2.skjóta og þrjár beljur lágu, flott skot . </description>
Ótitlað
      <description>Þá er ég komin heim úr viku ferð á Akureyri og var það ágætt, fremur leiðinlegt veður enda segja akureyringar að það hafi bara verið vor og haust.En ég tók nokkrar myndir mér til gamans og er búin að setja þær hér inn allavega hluta þeirra.Það styttist í hreindýrið!!!! M</description>
Verslunarmannahelgin
      <description>Jæja, þá er þessi helgi liðin og vorum við í sumarbústaðnum í þokkalegasta veðri, rigning fyrstu dagana og svo mjög gott laugardag, sunnudag og mánudag. Einar Hallur var með okkur og kom hann á föstudeginum. Á sunnudag fórum við að Hítarvatni og svo fyrir múlana og komum niður hjá Valbjarnarvöllum, það var fín ferð og mikil fegurð.Einar Hallur æfði sig heilmikið á rifflana, svo sló hann grasið á helstu gönguleiðum.Á föstudagskvöldið buðu Hafrún og Kalli upp á humarveislu sumarsins, alveg frábært.Arnór og Sigurgrímur voru með okkur í mat ásamt Hafrúnu og Kalla á laugardagskvöldið og var það gaman. M</description>
Sitt lítið af hvoru!
      <description>Við fórum til Akureyrar í júní og áttum þar góða daga yfir hvítasunnuna, fórum að skoða fuglasafnið í Mývatnssveitinni og var það gaman, við fórum einn dag út á skotsvæði Akureyringa þar sem Einar Hallur var að æfa sig fyrir hreindýrið í haust og var hann vel hittinn og svæðið alveg ágætt.Svo fórum við Héðinsfjarðargöngin til Siglufjarðar, flott göng en Héðinsfjörðurinn var nú ekki spennandi enda rok og rigning, fengum svo betra veður þegar við komum til Hofsós.Vorum svo í nokkra daga upp í bústað í góðu yfirlæti.Veðrið er búið að vera gott hér heima það sem af er júlí, sjáum svo til hvað við gerum meira. M</description>
Sjómannadagurinn og nýjar myndir.
      <description>Við fórum út að keyra á Sjómannadaginn og byrjuðum í Hafnarfirði, þar voru hobby skipstjórar með bátana sína á Læknum og var gaman að fylgjaast með þeim, svo var aðeins kíkt við á höfninni og var töluvert af fólki þar. Svo fórum við Vatsleysuströndina og komum við á golfvellinum og var Stefán að spila þar við einhverja eðal frú!!!!Fórum svo í kaffi til Díönu og var þar boðið upp á pönnukökur og kráserí.Í vikunni fórum við með jeppann í undirvagns ryðvörn svo okkur liði nú svolítið betur en hann var að farinn að ryðga svolítið, skil ekki afhverju er hætt að ryðverja nýja bíla nú til dags.Búin að hlaða 100 skot fyrir sumarið vona að það dugi eitthvað frameftir árinu eða fram að hreindýri.Svo er bara að bíða eftir sumrinu, en það éljaði aðeins í dag. M</description>
Vorið
      <description>Í gær fékk ég tuttuguþúsundasta gestinn minn inn á síðuna og þakka ég fyrir það.Við vorum í Sanddalnum um helgina og fengum þokkalegt veður en fremur svalt, við settum niður nokkur tré, Reyni, Silfurreyni, gljámispil, kvist og berjarunna.Settum vatnsdæluna við og vonum að ekki frysti mikið á næstu dögum.Svo voru svona hefðbundin verk sem unnin eru á hverju vori, bóndinn kíkti á girðingarnar og ég gerði vor hreingerninguna.Það var mikið fuglalíf í dalnum við sáum álftir, gæsir,endur, rjúpur, spóa, lóu, hrossagauk og fullt af smáfuglum, en krummi og máfurinn voru nú komnir aðeins á stjá svo þá verða nú afföll af ungunum, en svona er lífskeðjan. Gróðurinn er allur að springa út og virðist koma vel undan vetri.Það er töluverður snjór í fjöllum hjá okkur svo vonandi verður nóg vatn í sumar.M</description>
Suðurströndin
      <description>Á laugardaginn fórum við í bíltúr um í gegnum Krísuvík og nýja suðurstrandaveginn og þegar við komum að sjónum fór að létta til og fengum við hið fallegasta veður og 10 stiga hita. Fengum okkur nesti í Herdísarvíkinni og var fuglalífið mikið þar, fórum svo um byggðina þar sem Gata heitir og að Strandakirkju og er hún mjög falleg og vel við haldin enda sennilega ríkasta kirkja landsins, hú var opin og mjög falleg að innan.Hleðslurnar kring um hana eru alveg magnaðar. Í litla bæjarkjarnanum sem er þarna eru bæjir sem heita Þorkelsstaðir I og II, þar er uppi skilti sem stendur á ¨Free Camping¨og virðist það vera svona lítið samfélag með vísir að gróðurhúsi og svolítið draslaralegt. Svo var farið í Hveragerði og versluð blóm hjá Ingibjörgu og eru þau bæði fallegri og mun ódýrari en hér í bænum, á Lobeliunni munar 1000 kr á st svo það borgar sig að keyra þangað þó olían sé dýr. Á sunnudag kíktum við í kaffi til Soffíu og Friðjóns, þar fengum við kaffi og nýbakaðar vöfflur.Bara góð helgi. M</description>
Vorfílingur
      <description>Nú, er svona komið að því að maður vill fara að sjá vorið koma af alvöru , enda var vel hlítt í dag, fór í 15 stig.Páskarnir liðu hjá í Dalnum í skíta veðri svo það var gott að hvíla sig og lesa góða bók.Jónatan og Jón félagi hans kíktu við hjá okkur.Svo er bara búið að vera snúningasamt hjá mér þessa vikuna og síðustu líka.Ætla að byrja á vorverkum á morgun. M</description>
Lífið kemur og lífið fer
      <description>Tengdamóðir mín Guðrún Karlsdóttir er látin og fór útförin hennar fram á mánudag 11.apríl og var það mjög falleg útför, Sigurður Jónsson prestur í Ásprestakalli sá um hana ásamt öðru góðu fólki.Karlakór Fóstbræðra sá um tónlistina sem var afar falleg, flott rödduð og glæsileg og alveg í anda Rúnu, enda var hún styrktarmeðlimur þessa kórs.Það er alltaf að fækka í hópnum sem er á þessum aldri og nú er mamma ein eftir af þeim nánustu, en dauðinn er það eina sem við getum verið viss um að vitjar okkar allra.En þeir sem eru á þessum aldri 80 -90 ára er ein sterkasta kynslóð sem uppi hefur verið og fáir lifað jafn miklar breytingar í heiminum, sem þau.Þau voru alin upp í torfkofum og engin tækni og yfeirleitt bara vinna,vinna og vinna meir.Svona er þetta nú bara. M</description>
Föstudagur
      <description>Jæja þá er maður loksins búin að fá annan bílinn af verkstæði og er það jeppinn, en við vorum að láta setja í hann 100% læsingu að aftan. Litli bílinn verður ekki til fyrr en einhvernt ímann í næstu viku og verður hann þá búinn að vera á þriðju viku á verkstæðinu. Það er ótrúlegt hvað þetta getur dregist.Það stendur nú ekki mikið til þessa helgina bara að dúlla sér við jeppann. M</description>
Ferð í Sanddal
      <description>Þá gafst okkur loksins tími til að eyða einni helgi í Sanddalnum og var fallegt veður þegar við komum, sól og stilla en á laugardag var milt og þoka. Hafrún og Kalli voru líka og skruppum við í smá bíltúra, svo fóru bræðurnir að smala en það var rolla með lambi á útigangi í Hvammslandi, en á laugardag komu menn og tóku þau.Það var nú ekki mikið annað dýralíf, eitthvað heyrðist í rjúpu og snjótittlingum og svo var krummi karlinn á svæðinu.Sáum smá ummerki eftir tófu en hefur oft verið meira.Þeir bræður Bjarni og Halli ásamt fjölskyldum voru í Þrastar húsi. M</description>
Lífið
      <description>Jæja, þá er allt daglega lífið komið í sinn fasta farveg, skólinn búinn, skattaskýrslurnar búnar svo þá er bara að bíða eftir vorinu.Ég lenti í umferðaróhappi í síðastliðinni viku á litlu Toyotunni, meiddi mig ekkert en bílinn skemmdist svolítið og varð óökufær en hann er kominn á verkstæði, verð vonandi búin að fá hann áður en jeppinn fer á verkstæði en við ætlum að setja 100% læsingar að aftan. M</description>
Ljósmyndaferð í Krísuvík
      <description>Ég fór með skólafélögum og Vigfúsi kennara í útimyndatökur í Krísuvík  á laugardag og fengum við frábært veður eða eins og það gerist best á þessum árstíma, heiðskýrt, sól og logn, ég hef sjaldan séð himininn jafn bláann. Í dag fórum við upp í Þormóðsdal og Hafravatnshringinn og það var frekar leiðinlegt skyggni, allt svona grámóskulegt svo ég tók engar myndir þar.Kíktum svo í kaffi til Soffíu og Friðjóns í pönnsur og eplapæ, svo þegar við komum heim birtust Erlingur, Þuríður og dætur, svo ég bakaði vöfflur og svoleiðis.Svo er mamma búin að fá inni á DAS í 6 vikur, bara gott mál M</description>
Nýi Hiluxinn
      <description>Við vorum að fá okkur nýjan Hilux árg 2007, þurfum svolítið að sníða hann að okkur og gerum það svona smásaman. Annars gengur lífið sinn vanagang, nú er þetta síðasta vikan í skólanum, erum að spá í norðurljósaferð á meðan frostið er, svo á að fara einhvern góðann hring á laugardag sennilega Kleifarvatn, Selvog og Eyrabakka eða eitthvað svoleiðis. M</description>
Skólinn
      <description>Fór með skólanum í dag um Suðurnesin og var veðrið svona la la en þræl gaman,  tók um 200 myndir og svo er bara að athuga hvort nokkuð sé nothæft af þeim, ætla að skoða þær betur áður en ég set þær inn á síðuna, en maður er alltaf að læra eitthvað nýt t.d þríhyrningsdæmið sem Vigfús kennari talaði um við okkur og svo bara að læra á myndavélina  tíma, ljósop og hraða þetta síast hægt og rólega inn sjálfsagt. M</description>