Velkomin á bloggið mitt Hér verður svona sitt lítið af ýmsum áhugamálum mínum. |
|
Færslur: 2011 Mars28.03.2011 04:07Ferð í SanddalÞá gafst okkur loksins tími til að eyða einni helgi í Sanddalnum og var fallegt veður þegar við komum, sól og stilla en á laugardag var milt og þoka. Hafrún og Kalli voru líka og skruppum við í smá bíltúra, svo fóru bræðurnir að smala en það var rolla með lambi á útigangi í Hvammslandi, en á laugardag komu menn og tóku þau.Það var nú ekki mikið annað dýralíf, eitthvað heyrðist í rjúpu og snjótittlingum og svo var krummi karlinn á svæðinu.Sáum smá ummerki eftir tófu en hefur oft verið meira. Þeir bræður Bjarni og Halli ásamt fjölskyldum voru í Þrastar húsi. M 22.03.2011 17:12LífiðJæja, þá er allt daglega lífið komið í sinn fasta farveg, skólinn búinn, skattaskýrslurnar búnar svo þá er bara að bíða eftir vorinu. Ég lenti í umferðaróhappi í síðastliðinni viku á litlu Toyotunni, meiddi mig ekkert en bílinn skemmdist svolítið og varð óökufær en hann er kominn á verkstæði, verð vonandi búin að fá hann áður en jeppinn fer á verkstæði en við ætlum að setja 100% læsingar að aftan. M 13.03.2011 22:37Ljósmyndaferð í KrísuvíkÉg fór með skólafélögum og Vigfúsi kennara í útimyndatökur í Krísuvík á laugardag og fengum við frábært veður eða eins og það gerist best á þessum árstíma, heiðskýrt, sól og logn, ég hef sjaldan séð himininn jafn bláann. Í dag fórum við upp í Þormóðsdal og Hafravatnshringinn og það var frekar leiðinlegt skyggni, allt svona grámóskulegt svo ég tók engar myndir þar. Kíktum svo í kaffi til Soffíu og Friðjóns í pönnsur og eplapæ, svo þegar við komum heim birtust Erlingur, Þuríður og dætur, svo ég bakaði vöfflur og svoleiðis. Svo er mamma búin að fá inni á DAS í 6 vikur, bara gott mál M 09.03.2011 21:01Nýi HiluxinnVið vorum að fá okkur nýjan Hilux árg 2007, þurfum svolítið að sníða hann að okkur og gerum það svona smásaman. Annars gengur lífið sinn vanagang, nú er þetta síðasta vikan í skólanum, erum að spá í norðurljósaferð á meðan frostið er, svo á að fara einhvern góðann hring á laugardag sennilega Kleifarvatn, Selvog og Eyrabakka eða eitthvað svoleiðis. M
Flettingar í dag: 252 Gestir í dag: 107 Flettingar í gær: 133 Gestir í gær: 22 Samtals flettingar: 343491 Samtals gestir: 30538 Tölur uppfærðar: 21.11.2024 10:47:03 |
Eldra efni
Nafn: María GunnarsdóttirFarsími: 8991904Tölvupóstfang: mariagunnars@gmail.comMSN netfang: mariabg@hi.isHeimilisfang: Ásakór 11Uppáhalds tónlist: Country, Cliff og íslensktUppáhalds matur: Villibráðclockhere Tenglar
|
© 2024 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is