Flettingar í dag: 65
Gestir í dag: 37
Flettingar í gær: 133
Gestir í gær: 22
Samtals flettingar: 343304
Samtals gestir: 30468
Tölur uppfærðar: 21.11.2024 09:25:36

Velkomin á bloggið mitt

Hér verður svona sitt lítið af ýmsum áhugamálum mínum.

Færslur: 2010 Ágúst

31.08.2010 22:18

Ágúst

Það hefur verið nóg að gera upp á síðkastið, helgina 20 ág fórum við í Dalinn og var Karl Hallur gerður að Sanddalsgoði með víking og öllu tilheyrandi. Við kíktum í gæs og var ekkert flug á svæðinu, fengum samt 2 fugla.Núna um síðustu helgi vorum við á Akureyri og var verið að skíra yngsta barnabarnið og fékk hann nafnið Davíð Már, svo var veisla með þvílíkum kökum og gummilaði, fórum og skoðuðum Menningarhúsið Hof og er þetta glæsileg bygging, svo var tískusýning og húllum hæ í Gilinu og göngugatan full af fólki. Á sunnudag fórum við í kaffi til Einars og Ísólar áður en við lögðum af stað heim á leið og fórum við Þverárfjallið og var skítaveður þar , en fór svo batnandi eftir því sem sunnar dró, kíktum við í bústaðnum og var gott veður þar að vanda, komum svo í bæinn um kvöldmatarleytið.
emoticon M

05.08.2010 23:05

Ágúst

Við fórum í dalinn um helgina og fengum gott veður allt upp í 23° í forsælu en það var sólarlítið.
Á laugardeginum dældi Sigurgeir vatni í karið annars er vatnsbúskapurinn orðinn frekar lítill á þessum slóðum, nóg af laxi í hylnum en hann hreyfir sig lítið enda áin 13° heit, svo þurfti að skipta út fúa spýtu og þvo öskuna af pallinum. Kalli og Hafrún komu í mat til okkar og svo birtust Soffía og Friðjón og var glatt á hjalla, en svo fóru þau heim seinna um kvöldið. Á sunnudeginum fórum við upp á heiði og vorum bara svona að fylgjast með dýralífinu, ákváðum svo að fara upp að skotsteinavatni og prufa einn riffilinn, þá voru þar fyrir Jónatan og Jón félagi hans og voru þeir að stilla sína riffla inn fyrir hreindýraferð.
Við ákváðum svo að sjá hvað við kæmumst langt upp frá Fornahvammsmúla og komumst við inn fyrir Sátu, en þurrkarnir hafa verið svo miklir að allar mýrar eru þurrar, þar var fjörugt fuglalíf, álftir, endur og  gæsir. Við höfum einu sinni áður farið á bíl upp í Sátuna en þá áttum  við Súkku og fórum við þá upp og yfir Tröllakirkju á snjó um allt þetta svæði  keyrðum upp í Sátuna og komum niður Sandinn og var það árið 2002.
emoticon M
  • 1
Flettingar í dag: 65
Gestir í dag: 37
Flettingar í gær: 133
Gestir í gær: 22
Samtals flettingar: 343304
Samtals gestir: 30468
Tölur uppfærðar: 21.11.2024 09:25:36

Eldra efni

Nafn:

María Gunnarsdóttir

Farsími:

8991904

MSN netfang:

mariabg@hi.is

Heimilisfang:

Ásakór 11

Uppáhalds tónlist:

Country, Cliff og íslenskt

Uppáhalds matur:

Villibráð
clockhere

Tenglar