Velkomin á bloggið mitt Hér verður svona sitt lítið af ýmsum áhugamálum mínum. |
|
Færslur: 2008 Október29.10.2008 14:31Rjúpnaleit og afmæli, nýjar myndirVið fórum á laugardaginn upp að Hafravatni og nágreni til að athuga hvort ekki væri allt vaðandi í rjúpu á þessu friðaða svæði til margra ára. Það var fallegt veður en við sáum 1. rjúpu og annarstaðar för eftir aðra, en við sáum tvær kanínur svo ekki er útlitið gæfulegt.(Förum bara á kanínuveiðar) Fórum í afmæli á sunnudeginum til Guðnýjar Kristínar og var það voða gaman. Í gær kom Hafdís og fjölskylda í bæinn en Einar Geir þurfti til læknis svo fara þau heim í fyrramálið. Við Helgi Þór fórum út að labba í morgun, fórum í búðina og bakaríið og labbaði hann báðar leiðir en svo sofnaði hann á meðan ég var að laga matinn hans, þreyttur blessaður, hann er mjög góður ef foreldrarnir eru hvergi nálægir, það er nú þannig með flest börn. 23.10.2008 20:13Hálf svört vikaÞessi vika hefur eiginlega ekki verið neitt skemmtileg, allt svo neikvætt og allt á hausnum, ríkisstjórnin gerir ekki neitt nema skoða málin alveg endalaust svo nú er mál til komið að hún taki á hlutunum ella fari bara frá, þá væri þetta nú fullkomnað, kannski hægt að bæta eins og einu eldgosi við já og svo fárviðrinu sem á að koma í nótt, flott flott flott. Annars kom Aðalheiður til mín á þriðjudag og vorum við að dúlla okkur í tölvunni hennar, svo komu Friðjón og Soffía í kvöldkaffi og á morgun kemur Unnar til mín en það er skólafrí núna, svo fer Dísa norður á morgun. ![]() 20.10.2008 21:38Hrafnaþing/Jón ÁsgeirÓlíkir þættir þessi og Silfur Egils, þarna var umræðan málefnaleg og tókst Jóni Ásgeiri að skýra sitt mál þokkalega. Ég er nú farin að hallast að því að Davíð Oddsson hafi farið á límingunum þann 30. sept þegar hann hafði mikinn sparnað af landsmönnum og held ég að hann ætti nú bara að setjast í helgan stein og taka Geir Haarde með sér, Ekki veit ég hvurn andskotann maður ætti að kjósa ef til nýrra kosninga kæmi, hef alltaf kosið XD en nú er fokið í flest skjól, vil bara skipa ópólitíska þjóðstjórn og hala brækurnar upp um þessa herra, svo finnst mér að það ætti að sækja til saka bankastjórnendur sem skömmtuðu sér laun og önnur fríðindi, las eihverstaðar (helgarblað DV) að Bjarni Ármann hafi fengið 900 milljónir í starfslokasammning og hinir eitthvað svipað og svo náttúrulega árangurs tengd laun, svo nú þegar illa gengur eiga þeir að greiða með sér þar sem árangurinn hefur verið afspyrnu lélegur síðustu mánuði. ![]() 19.10.2008 16:44Fínt í sveitinniÞá er maður búinn að slaka á í sveitinni þessa helgina og var það mjög notalegt, annars var fallegt veður í gær og kíktum við á heiðina sáum enga fugla né ref, vorum aðeins að skjóta upp við Skotsteinavatn og lofar nýji riffilsjónaukinn góðu.Það voru frekar fáir í dalnum Hafrún og Kalli voru og svo var verið 1 nótt í Bjarna húsi. Það er búið að mála húsið í Sveinatungu en eftir að taka stillansana niður. ![]() 12.10.2008 20:35Norðanfólk farið heim, nýjar myndir![]() En ég hef aldrei fyrr þurft að fjarlægja alla hluti upp í meters hæð áður, en svona vill þetta vera misjafnt, en Helgi Þór var óvenju fjölþreyfinn og braut tvo hluti.Þeir fóru heim í dag og gekk ferðin vel norður. Einar Hallur og Kristmundur voru uppi í bústað um helgina en þeir fóru í hjólatúra um næsta nágrenni. Við vorum að fá okkur stærri sjónauka á Remington riffilinn eða 3x12x56 og losnuðum við 7x50 sjónaukann í vöruskiptum, fengum hreindýralæri í staðinn og var það dýr skotið af konu sem heitir Anna Lóa, alltaf gaman þegar fleiri konur koma inn í veiðina og var þetta hennar fyrsta dýr og ætlar hún að fá sér haglabyssu og fara á rjúpu í haust. Við fórum á bílasýninguna í Fífunni í gær og var gaman að sjá úrvalið, ekki myndi ég vilja lenda undir stæðstu amerísku bílunum sem voru þarna það væri klárlega dauðadómur. Sá einn bíl sem mér fannst flottur en það var HiLux 2008 á 38" rauður, kannski fáum við okkur svoleiðis bíl næst þegar við endurnýjum ![]() 09.10.2008 23:22Það er fjör![]() Jæja, þá er dagur að kveldi kominn einu sinni enn og alltaf versna þjóðmálin, svo maður bara á ekki til eitt aukatekið orð né aur lengur, því kókaínliðið er búið að ræna hvern einasta mann á landinu og svo eru þeir svo miklar skræfur að þeir loka sig inni með lífverði allt um kring eða eru farnir úr landi, svo skil ég ekki af hverju eignir þeirra hér og erlendis eru ekki teknar eignarnámi eins og hjá hverjum öðrum sem verður gjaldþrota, maður gæti haldið að æðstu ráðamenn væru hræddir við þá! Annars heldur daglega lífið áfram þó allt sé farið til andskotans. Hér á myndinni eru Sigurgeir,Kalli og Óli en þeir komu(sko Kalli og Óli) og borðuðu hjá mér villibráð, en ástæðan fyrir því að ég er með villibráð svona á virkum deg er sú að ég var að elda fyrir Gestgjafann en þeir ætla að gefa út sér villibráðarblað. Það verður svo aldeilis fjör hjá okkur á morgun en þá koma Einar Geir og Helgi Þór með pabba sínum í bæinn og verða þeir fram á sunnudag. 06.10.2008 23:52Það gengur á ýmsuAnnars vorum við í afmælisveislu hjá Kristínu mágkonu á laugardagskvöldið og var það vel lukkuð og skemmtileg veisla. Svo átti nú bóndi minn afmæli í dag og kom allt Staðargengið í kaffisopa og var það bara fínt. ![]() 04.10.2008 18:28Kaldársel![]()
Flettingar í dag: 35 Gestir í dag: 12 Flettingar í gær: 138 Gestir í gær: 20 Samtals flettingar: 531149 Samtals gestir: 36906 Tölur uppfærðar: 8.4.2025 03:55:15 |
Eldra efni
Nafn: María GunnarsdóttirFarsími: 8991904Tölvupóstfang: mariagunnars@gmail.comMSN netfang: mariabg@hi.isHeimilisfang: Ásakór 11Uppáhalds tónlist: Country, Cliff og íslensktUppáhalds matur: Villibráðclockhere Tenglar
|
© 2025 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is