Velkomin á bloggið mitt Hér verður svona sitt lítið af ýmsum áhugamálum mínum. |
|
Færslur: 2007 September29.09.2007 19:58Ekki er nú öll vitleysan eins![]() Árni bróðir hringdi í mig í gærkveldi þá nýkominn heim frá spáni og höfðu þau hjónin ásamt Dísu systir ráðist í að kaupa íbúð rétt fyrir utan Torrevaja á rúmar 15 milljónir, ekki dónalegt það. Fólk virðist hafa ómæld fjárráð þessa dagana. ![]() M 26.09.2007 15:52366 hektarar sem alltaf eru á kafi í snjó!!!!!!!!!!.Halló Alveg er það makalaust hvað margt fólk á mikinn pening, við vorum að gera tilboð í smá skika norður í Fljótum og reiknuðum nú ekki með að hann færi á háar upphæðir ,en annað kom nú á daginn, þetta er gömul eyðijörð sem er með litlu undirlendi einni smá ársprænu og enginn vegur og vorum við að hugsa um hann til rjúpnaveiða. Það var alveg fjöldi tilboða sem bárust eða um 50 st og var hæðsta tilboðið tæpar 16 milljónir, hvað er í gangi??. Ætli þessi jörð falli svo ekki undir óbyggðanefnd því hún nær upp í 800 metra. Þá er nú betra að hugsa bara um smá skektu, nema þessir karlar kaupi sjóinn líka, hvur veit. M 24.09.2007 17:38SkólinnÞá er skólinn byrjaður hjá mér, en ég ákvað að taka 30 rls réttindin í Fjöltækniskólanum eða öðrum orðum pungaprófið og er þetta ansi fróðlegt sem komið er. Það kannski endar nú með því að ég læri á áttavita en mér hefur stundum orðið á að rengja hann í þoku svo ég hef farið eftir Gps tækinu mínu.Núna er ég að stinga út staðsetningar á sjókortum og er það bara skemmtilegt þó svo að maður sigli svo sjálfsagt eftir Gps tækjum ef maður fær sér einhverntíman einhverja skektu. M 18.09.2007 00:32Brúðkaupið fyrir norðanJæja. ![]() Þá er búið að koma dótturinni í hnapphelduna, en það var mjög falleg og vel lukkuð athöfn og fín veisla á eftir, en Dagga mágkona Andrésar var veislustjóri og fórst henni það vel úr hendi, hún sá einnig um að syngja einsöng bæði í kirkjunni og í veislunni með undirspili pabba síns og systur og var það mjög vel gert, hún flutti lagið Brú yfir boðaföllin í kirkunni og svo lögin Þú ein frá Andrési til Dísu og Ég fann þig frá Dísu til Andrésar. Svo hjálpuðust allir að við að gera veisluna fína og ganga frá á eftir. Ég var voða fegin að Hrönn mágkona hjálpaði mér bæði kvöldið fyrir veislu við að setja saman kökur og gera heita rétti og einnig við að ganga frá en ég var orðin ansi þreytt og slæm í höndunum . En þetta var hreint frábær helgi bjart og fallegt veður á laugardeginum en ansi svalt eða við frostmark. Komum heim á mánudagseftirmiddegi en þá fór ég í fyrsta tímann í Fjöltækniskólanum . M 11.09.2007 22:26Glæsigripur![]() Svo er stóri dagurinn hjá Dísu á laugardaginn en þá ætla þau Andrés að láta pússa sig saman. ![]() M
Flettingar í dag: 75 Gestir í dag: 11 Flettingar í gær: 88 Gestir í gær: 12 Samtals flettingar: 531051 Samtals gestir: 36885 Tölur uppfærðar: 7.4.2025 11:47:48 |
Eldra efni
Nafn: María GunnarsdóttirFarsími: 8991904Tölvupóstfang: mariagunnars@gmail.comMSN netfang: mariabg@hi.isHeimilisfang: Ásakór 11Uppáhalds tónlist: Country, Cliff og íslensktUppáhalds matur: Villibráðclockhere Tenglar
|
© 2025 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is