31.07.2007 23:03
Það er orðið langt síð ég bloggaði síðast, svo þá er bara að bæta úr því.
Við fórum um síðustu helgi í Landmannahellir og leist svo vel á staðinn að við gerðum bara út þaðan. Við sofnuðum við söng ættjarðarlaga og vöknuðum svo um morguninn við fallega harmonnikkutóna. Fórum inn í Hrafntinnusker og gengum upp í 1128 metra hæð og settum hrafntinnu í vörðuna, svo gerði heilmikla snjókomu á okkur svo við urðum gegnblaut enda bara á stuttbuxum. Skoðuðum líka Fossabrekkur og var mjög fallegt þar, fórum svo í gegnum Hekluhraunið meðfram Þjórsá og út á Skarfanes , en Skógræktin er með það svæði og kom okkur þetta svæði töluvert á óvart, skemmtilegur gróður og fallegur gamall kofi.
Gott í bili