Velkomin á bloggið mitt Hér verður svona sitt lítið af ýmsum áhugamálum mínum. |
|
29.01.2009 17:24Dagur eins og þeir gerast fallegastir og nýjar myndirÞað er óhætt að segja að veðrið hafi leikið við mig í dag. Var á röltinu í um tvo tíma og voru nokkrir úti með myndavélarnar sínar eins og ég. Annars er lítið að frétta, ég fór til pabba og mömmu í gær og til tengdó eftir að ég var búin að skreppa niður Laugaveginn.Það verður þorrablót hjá Grafarvogsgenginu um helgina og verður ábyggilega gaman. M 25.01.2009 22:07Það gengur mikið á! Nýjar myndirJá það má nú segja það, allt að fara til andskotans eina ferðin enn. Hef verið að dútla mér heima mest alla vikuna , fór í jarðaför Huldu Lilju á föstudaginn og var það sorglegt en falleg athöfn. Í gær fórum við Vatnleysuströndina í fallegu veðri og skoðuðum fuglalífið en ég gleymdi myndavélinni heima svo það segir fátt af þeirri ferð, fórum svo í kaffi til Stefáns og Díönu, í dag fórum við til Erlings og Þuríðar og þaðan til Árna bróðirs og kíktum svo á tengdamömmu. Það er búið að vera eitthvað ólag hjá mér í tölvumálum en svo kom ég rauternum inn í morgunn, svo er bilun á 123.is svo ég kem ekki inn myndum. M 18.01.2009 19:34Lítið í fréttum, nokkrar myndirJæja, þá er nú farið að síga á seinnihluta janúar. Það hefur frekar lítið verið um að vera i síðustu viku, ég fór nokkrum sinnum á röltið svo kíkti ég til mömmu og pabba, tengdamömmu og heimsótti Hafrúnu á spítalann á fimmtudaginn og er hún aðeins að lagast blessunin. Við kíktum svo á hana aftur í dag og sér maður alveg dagamun á henni, fórum svo í kaffi til Hrannar og Gunnars, hjálpuðum svo tengdó til að flytja sig á milli herbergja en það gerir hún nokkuð reglulega. Reyndar skruppum við til Óla og Möggu í gær og voru þau hress að vanda, Óli ætlar að mæta aftur til vinnu á mánudag en hann fór í aðgerð á fæti og er allur að jafna sig. Ég tek þátt í verkefni sem Hagstofan stendur fyrir um rannsókn á útgjöldum heimilanna, en út frá þessari rannsókn er vísitala framfærslu reiknuð. Það er áhugavert. M 14.01.2009 09:30Lífið er ekki alltaf dans á rósumDapur dagur í dag, Hulda vinkona mín dó núna undir morgun bara nýorðin 36 ára, frá Kidda sínum, Brynju og Ívari Orra. Guð styrki þau í sorg sinni. María 11.01.2009 22:46Smá bíltúr í dag og nýjar myndirVið fórum í Heiðmörkina í dag í ágætis veðri en samt var dumbungur og fljúgandi hálka. Sáum 2 kanínur og 1 rjúpu á þeirri leið og mikið af útivistarfólki. Svo fórum við upp í Kaldársel og var margt um manninn þar, sáum fálka reka upp og elta rjúpu en hann snéri fljótlega frá henni. Kíktum svo í kaffi til Hrannar og Gunnars og skoðuðum páfagauksungana hjá þeim en þeir eru 3 og hafa stækkað svaka mikið síðan síðast, annars er hausinn á þeim stærðstur eins og er. M 10.01.2009 12:43Nýtt ár og nýjar myndirGleðilegt ár öll sömul. Tölvan mín er búin að vera með einhver leiðindi undanfarið svo ég var eiginlega búin að gefa skít í hana, en svo tókst mér að koma henni í skröltfært lag í bili. Annars hefur nýja árið farið rólega af stað og nú er bara að ganga af sér allt spikið sem bættist við yfir hátíðarnar, reyni að fara á hverjum degi smá hring um hverfið. Það er alveg með ólíkindum hverju fólk safnar af drasli og setur fyrir utan húsin sín, ég rakst bæði á ónýtan bát og gamlan traktor hér í næstu götu en þetta á kannski bara rétt á sér, sama er mér. Er að bagsa við að koma vídeo upptöku inn á síðuna en það gengur ekki alveg nógu vel hjá mér svo ég verð að leita annara leiða. M 28.12.2008 00:39Jólin og nýjar myndirGleðilega hátíð allir mínir menn. Við erum búin að gera víðreisn um hátíðina og þeystumst við til Akureyrar á Þorláksmessu í sæmilegu veðri en gjólaði dálítið mikið, stoppuðum í Varmahlíð og þar fékk Sigurgeir sér vel kæsta og góða skötu en ég borða bara ómengaðan mat. Við vorum komin um fjögur leitið og kíktum fyrst á Dísu og Helga Þór en misstum af Einari Geir hann hafði farið til pabba síns um hádegisbil. Svo var tekinn einn rúntur um bæjinn til að kíkja á skreytingar og voru þær alveg í meðallagi í ár, var svo haldið á Grenivellina og vorum við þar fram á annan í jólum er við héldum heim aftur. Nú, við elduðum líka þennan fína kalkún og höfðum möndlugraut á undan, svo vildi ég fá að sitja þar sem Dísa sat og skipti hún við mig og þar fékk ég möndluna, en ég lét nú Dísu fá hana þar sem ég vélaði sætið af henni, í möndlugjöf var Stórhættulega strákabókin. Svo var nú étið yfir sig, vaskað upp og farið í að opna pakkana og voru flestir salla ánægðir með sínar gjafir. Á Jóladag kom Álfheiður mamma Ísólar og hennar maður Benedikt í kaffi og var mjög gaman að hitta þau en við höfðum ekki hitt neitt af Ísólar fólki fyrr, svo var farið í hangiket til Dísu og Andrésar um kvöldið og kom Einar Geir heim og opnaði pakkana sína og borðaði með okkur, annars er hann hjá pabba sínum yfir þessi jól. Á annan dag jóla var mjög fallegt veður og lögðum við af stað upp úr kl 13 og notaði ég tímann til að prufa myndavélina sem ég fékk í jólagjöf frá bóndanum og tók ég um 200 myndir á 100 km hraða út um mishreinar rúður. Stoppuðum aðeins í Sanddalnum og var þar nýfallinn snjór og sáum við tófuför í honum, en mesti veturinn var á Holtavörðuheiðinni og niður Norðurárdalinn. Var okkur svo boðið í kvöldmat að Brúnastöðum 24 og fengum þar heilan helling af frábærum kræsingum. Í dag komu Gunni, Alda, Unnar og Sindri í kaffisopa til okkar en annars höfum við ekki nennt að gera nokkurn skapaðan hlut og ætla ég allavega að vera svona löt svolítið lengur. M 22.12.2008 21:2621 og 22 des + nýjar myndirÞað er rok og rigning núna, í denn var þetta kallað jólahret en þá snjóaði yfirleitt nú eftir hlýnun jarðar rignir bara allavega í borginni, ég er nú hér um bil viss um að það er skafrenningur á mínum heimaslóðum. Í gær fórum við í kirjugarðinn í Fossvogi og Hafnarfjarðar garð komum við hjá Gunna og Öldu með pakka og óska þeim gleðilegra jóla, svo kíktum við á Óla og Möggu og var páfagaukurinn þeirra dálítið ágengur, fórum svo á efri bæ í sömu götu og voru hjónaleysin þar að setja seríu á jólatréð. Svo fór ég á tónleika hjá Guju dóttir Maggíar systir í Seltjarnarneskirkju og voru þeir mjög góðir. Í dag fórum við svo til pabba og mömmu og tengdamömmu. Áðan komu Erlingur, Þuríður, Guðný Kristín og Kristbjörg í heimsókn til okkar, þær systur eru svo sætar. Setti inn nýjar myndir. M 20.12.2008 23:36Alveg að koma jól og nýjar myndirJólin nálgast hægt og hægt og maður er að taka til og gera Bláberja snafsinn klárann svo það sé nú hægt að bjóða upp á hann þegar menn koma þreyttir og kaldir úr bænum, annas er þetta allt að koma. Hafrún og Kalli komu í gærkveldi og Soffía og Friðjón síðdegis í dag og voru allir kátir eins og vera ber. Við ætlum í kirkjugarðana á morgun og kíkja til Gunna og Öldu og eitthvaðað snúast.Það er búið að taka út rjúpurnar svo þær verða klárar. M 18.12.2008 00:19Styttist til jólaÞá er maður búinn að skrifa jólakortin, ég var svolítið í seinna lagi með þau, var svo að pakka inn jólagjöfum í dag, þannig að það er að koma jólafílingur í mann. Helga, amma Ívars Arnars kom með pakka sem eiga að fara norður, svo við komum pakka til Ívars á hana.Ég held ég sé bara búin að kaupa allar jólagjafir nema handa bóndanum, en ég er enn að velta fyrir mér hvað ég eigi að gefa honum! vonandi dett ég niður á eitthvað sem hann hefur gaman af, kannski bara eitthvað landakort hann getur endalaust skoðað kort af landinu okkar og svo kannski einhverja fræðibók um Ísland ja hvur veit? M 16.12.2008 23:21FjölmiðlarEkki er ég sátt við þingið okkar, þeir samþykkja hverjar álögur af fæti annarar á okkur, algerlega óhugsað að manni finnst. TD. Hvað er með nýja nefskattinn sem á að renna til rúv og svo á að banna allflestar auglýsingar svo Jón Ásgeir fái nú örugglega einhverjar tekjur út á auglýsingar og geti haldið áfram að leika auðmann á okkar kostnað, er ekki komið nóg, þann hryðjuverkamann á einfaldlega að ákæra fyrir landráð. Tæp 18 þús á hvern mann 18 ára og eldri, það er dýrt fyrir fólk sem hefur ekki nokkurn áhuga á ríkisreknu stöðvunum, þannig að það verður ekkert val allt verður eins og áður bara fleiri borga og borga meira, í dag erum við hjónin að borga 28.752 kr á ári en verður á næsta ári tæpar 36.000 kr hækkunin er 7.248 kr sem er 25% hækkun svo ekki sé nú talað um þá sem alls ekki eru með sjónvarp né útvarp og er fullt af fólki sem svo er ástatt með, það gera nú 36 þúsund króna hækkun eða 100% á þau fyrir ekki neitt. Ekki batnar nú ástandið þegar DV er annars vegar, þar sleikir ritstjórinn skóna eigenda blaðsins af fullum krafti, annars fannst mér samtalið sem sýnt var í Kastljósi ef samtal skal kalla vera hálfgerðir hugarórar hjá mjög veikum manni og það eina sem mér datt í hug var einhver vesæll maður sem hálflá í hægindastól og virtist vera í annarlegu ástandi og talaði bara við sjálfan sig, þar sem viðmælandinn sagði öðru hvoru hum, ja, og . M 13.12.2008 17:33Þáði Bjarni Ármannsson um milljarð í mútur??????Það gengur núna sú saga milli manna að Bjarni Ármanns fyrverandi bankastjóra hafi verið beðinn um að víkja úr starfi og þegja um að hann gerði sér og væntanlega öðrum grein fyrir því að bankarnir riðuðu til falls og boðnar 900 milljónir og eins árs laun fyrir þögnina. Ja ljótt er ef satt er!! Hvar er heiðarleikinn nú til dags. Svo erum við íslendingar komnir á lista yfir hryðjuverkamenn og þá á bara að handtaka þá menn sem komu okkur þangað og setja þá í gæsluvarðhald og svo rannsaka málið og dæma þá eins og hverja aðra landráðamenn. M 08.12.2008 23:06Góð þjónusta hjá IcefineÉg keypti mér uppháa gönguskó fyrir tveimur árum hjá Icefine í Nóatúni og er mér búið að líka mjög vel við þá vatnsþéttir og þægilegir svo þarf maður ekki að nota legghlífar með þeim. En núna í haust tók ég eftir að saumar yfir tánum voru farnir að slitna og gúmmíið farið að losna frá, svo þegar bóndinn átti leið í búðina þá spurði hann afgreiðslumanninn hvert væri best að fara með þá í lagfæringu, koma bara með þá til mín var svarið og gerði ég það nokkrum dögum seinna, hann skoðaði skóna, rétti mér svo nýja skó sem var aðeins búið að breyta hönnuninni á svo gúmmíið næði lengra upp að ristinni og fyrir þetta mátti ekkert borga þetta væri bara inni í þjónustunni og ætti að duga árum saman, þetta er náttúrulega bara frábær þjónusta og kem ég til með að versla útivistarfatnað hjá þeim í framtíðinni, svo er nú ekki verra að það er mjög gott verð á vörunum hjá þeim. En senn líður að jólum, er aðeins að byrja að setja upp jólaljós og pússa glugga, þvo gardínur, baka svolítið og kaupa flestar jólagjafirnar svo það er ekki mikið eftir þó á ég eftir að skrifa kortin. Við fórum í menningarferð til Hafnarfjarðar á laugardaginn, skoðuðum jólaþorpið, búðirnar og fórum svo og skoðuðum myndlist Í Hafnarborg kíktum svo á Sigga mág og svo til Fanneyjar og Gústa. M 01.12.2008 22:26Ódýrt og ódýrtJa það má eiginlega segja það, ég tók olíu hjá Orkunni í Hreðavatni um helgina og sá strax að 2 kr afslátturinn kom ekki inn svo ég tók kvittun til vonar og vara, sem var eins gott því þegar ég kíkti í heimabankann minn voru þeir búnir að taka út 10.000 + 8501 =eða 18.501 króna takk fyrir 46.91 lítra af olíu svo dýr var sá sopinn, svo er ég búin að vera að ergja Orkumenn í allan dag og ætla að halda áfram á morgun eða bara þar til þeir endurgreiða mér 10.000 kallinn. Þetta er búið að kosta mig bæði vinnu og símtöl ,svo það er spurning hvort svona viðskipti borgi sig þegar upp er staðið. Annars var ég bara að baka smákökur í dag og er nú komin jólalykt í húsið hér hjá okkur, við kíktum í heimsókn til Kalla og Hafrúnar í gær og var vel borið á borð að vanda hjá þeim heiðurshjónum. M 29.11.2008 20:34Lokadagur hjá okkur og nýjar myndirJæja þá er þetta tímabil búið hjá okkur en við kíktum upp eftir í dag, fórum úr gryfjunum í Hellisdal og var þokkalegt veður þar, gengum Hellistunguna beggja vegna en sáum engan fugl en ný bæli, svo var kominn lágarenningur svo við fórum niður í bíl þá voru þar fjórir menn og fóru þeir á sömu slóðir en þeir vissu ekki hvar þeir voru staddir og finnst mér ótrúlega mikið um það í haust að menn fari bara eitthvað án þess að kynna sér nokkurn skapaðan hlut. Svo kíktum við á heiðina og sáum nokkra bíla, einn var í Fornahvammi, annar við Norðurárbrúna þar, 1 við Búrfellsá, 1 á útskotinu rétt hjá slóðanum upp í mastur en við kíktum þangað og þar höfðu verið bílar fyrr í dag. svo var 1 á fyrsta holtinu upp í mastur og var það bíll sem er búinn að vera alla daga sem við höfum farið og er það hundamaður, svo voru 2 bílar fyrir ofan efri brúna og sáum við þá í Grákollugili og þar um slóðir, 1 bíll var í Bláhæðinni og hittum við þann mann og hafði hann engan fugl fengið þar, en hafði farið upp í mastur og skotið þar 1 fugl sem flaug upp undan 2 öðrum mönnum og komu þeir til hans og sögðust eiga fuglinn þeir hefðu verið búnir að skjóta á hann og lét hann þá fá hann.Svo keyrðum við inn dalinn okkar og fórum inn að Geststöðum og þar voru tveir menn og voru búnir að ganga inn að Smiðjugili þar sem þeir sáu fáeina fugla en þeir voru mjög styggir og eltu þeir þá niður í kjarr og náðu þar 2 og sögðu þeir að lítið hefði verið á þessu einkalandi í vetur eða vel innan við 20 fuglar. Gengum svo frá húsinu og drifum okkur heim. Lokatölur hjá okkur eru 34 fuglar og erum við bara sátt við það þar sem lítið hefur verið af fugli á þessu svæði í vetur. M Flettingar í dag: 252 Gestir í dag: 107 Flettingar í gær: 133 Gestir í gær: 22 Samtals flettingar: 343491 Samtals gestir: 30538 Tölur uppfærðar: 21.11.2024 10:47:03 |
Eldra efni
Nafn: María GunnarsdóttirFarsími: 8991904Tölvupóstfang: mariagunnars@gmail.comMSN netfang: mariabg@hi.isHeimilisfang: Ásakór 11Uppáhalds tónlist: Country, Cliff og íslensktUppáhalds matur: Villibráðclockhere Tenglar
|
© 2024 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is