Flettingar í dag: 65
Gestir í dag: 37
Flettingar í gær: 133
Gestir í gær: 22
Samtals flettingar: 343304
Samtals gestir: 30468
Tölur uppfærðar: 21.11.2024 09:25:36

Velkomin á bloggið mitt

Hér verður svona sitt lítið af ýmsum áhugamálum mínum.

04.04.2013 22:46

Páskar 2013

Við vorum í Sanddalnum um páskana í blíðskaparveðri, logni, sól og 10°hiti.

Vorboðarnir komu hver af öðrum inn dalinn, álftir, gæsir, endur, fálkar og krummar sem eru nú fastir gestir, en það er langt síðan við höfum séð fálka og hvað þá tvo. Það var ekki fjölmennt í húsunum í dalnum , var verið í 3 bústöðum.
Fórum upp á heiði og kíktum á útburðinn hjá refahúsinu og var ekki mikið gengið í hann, veit ekki hvort Valdi sé enn í þessu. Fórum svo upp í mastur og var enginn snjór á þeirri leið.
Á Hraunsnefi var verið að rífa íbúðarhúsið, en þar brann nú fyrir margt löngu og var þá byggt lítið hús sem svo var búið að byggja við, svo sennilega hefur ekki verið þörf á að rífa það.
Það verður nú trúlega lítið vatn í ánum í sumar eftir svona snjóléttan vetur, en það er enginn snjór í fjöllum.
Sigurgeir for í skógarhögg og tók niður 20 ára rússalerki sem var farið að skyggja á útsýnið niður að á, en svona er þetta maður potar niður plöntum í fjölda ára svo þarf að grisja.
Góð helgi.
emoticon M

18.02.2013 11:29

16-17.02.2013

Kíktum í afmæli til Heiðars það var ansi gott, súpa, kaffi og kökur.
Fórum svo á sunnudeginum í bíltúr upp í Kaldársel, Sléttuhlíðina og að Hvaleyrarvatni en við vatnið  ef vatn skyldi kalla var svo mikil drulla að það var vonlaust að ætla að gang kringum það bæði, akvegur og göngustígar voru ógeðslegir.
Lentum svo í pönnukökukaffi hjá Hrönn.
emoticon M

10.02.2013 22:47

Þorrinn

Þá er þorrinn vel hálfnaður og maður er búinn að eta mikið af þorramat.
Var á þorrablóti í gær hjá Lífeyrisdeild SFR og var góð mæting og mikill matur, harmonikkuspil, söngur, upplestur og mælt fyrir minni kvenna.
Í dag kíktum við í bollukaffi til Soffíu og hittum þar fyrir Kalla og Hafrúnu svo byrtust Stefán og Díana, svo það var bara glatt á hjalla.
Svo förum við í afmæli á laugardaginn til Heiðars, þannig að það eru eilíf veisluhöld.
Annars er allt í rólegheitum
emoticon M

26.01.2013 21:51

Hreindýr

Ósköp finnst mér UST standa ófagmannlega að upplýsingum um úthlutun hreindýraveiðileyfa í ár,
ekkert verð, ekkert talað um veiðiprófið og fyrir hverja eru svo þessar veiðar í nóvember, ætli ferðaþjónustan fái ekki úthlutað flest leyfin á þeim tíma, þá geta ferðabændur selt bæði á gæs og hreindýr á þessi svæði.
Maður þarf að skoða vel póstnúmerin þegar úrdrátturinn fer fram.
Ekki sækji ég um fyrr en verð liggur fyrir.

Svo fannst okkur síðast þegar við fórum á hreindýr vera breytt framkoma hjá leiðsögumönnum og fannst okkur þeir sækjast eftir því að ná ekki dýri á fyrsta degi, það var bara keyrt upp í þokuna og dagurinn látinn líða þar þó bjart væri neðar.Fæ mér nýjan leiðsögumann næst.

Mig minnir að ráðamenn landsins og þeirra fræðingar hefðu á sínum tíma talað um að virkjunarframkvæmdir á kárahnjúkasvæðinu mundu ekki hafa nein áhrif á hegðun hreindýra en mér sýnist nú að svæði 2 sé nánast að detta út sem veiðisvæði.

Nú árið 2013 má veiða 56 kýr og 66 tarfa á svæði 2 en var 2012 á svæði 1 og 2  291 belja og 169 tarfar - svo eru núna 241 belja og 184 tarfar á svæði 7 sem var í fyrra 120 beljur  og  67 tarfar, þannig að á svæði 7 eru flest dýrin og virðast þau vera að færa sig austar á svæðunum.
Þannig að það eru mikil áhrif sem virkjanirnar hafa haft á dýrin.


Svo er maður bara í félagsmálunum þessa dagana, verð með upplestur á þorrablóti 9.febrúar hjá lífeyrisdeild  SFR. 

Langar að fara að komast í bústaðinn, það er bara alltaf svo leiðilegt veður, rok og rigning, vantar frost og snjó.
emoticon  svo er maður vel tengdur
M

09.01.2013 20:10

Janúar

Gleðilegt ár og þökk fyrir liðin ár.
Jæja, það er bara kominn janúar og maður hefur ekkert bloggað lengi.
 Við eyddum jólunum á Akureyri að venju og var það mjög fínt, mikill snjór og vetrarlegt, annað en hér á höfuðborgarsvæðinu sem er bara hiti dag eftir dag , þoka og rigning, það mætti halda að við séum að verða norsk.
En nú bíður maður eftir snjó og frosti svo hægt sé að fara að leika sér upp í bústað.
Að öðru leiti er ekki mikið að frétta, allir við þokkalega heilsu og allt í rólegheitum.
emoticon M

30.10.2012 21:24

Rjúpan

Þá er maður búin að fara til rjúpna í fyrsta sinn á þessu ári.
Fyrsti dagur var fallegur og kaldur, ákváðum að fara um mínar heimaslóðir og ókum áleiðis,
svo var rölt um heiðarlöndin í nokkra klukkutíma. Sáum ekki mjög mikið af fugli, vorum að tína upp eina og eina og tvær og fimm  og svona, enduðum í 10 fuglum. Sáum svo einn hóp svona 30 fugla á hraðflugi seinnipartinn og hvarf hann okkur sjónum.  Á öðrum degi nenntum við ekki að fara vegna rigningar og þoku.Þriðja daginn kíktum við á heiðina og sáum engan fugl. Það voru nokkuð margir sem fóru frá mastrinu og gengu bæði suður heiði og norður en fáir skothvellir. Þeir menn sem við hittum sögðust ekki hafa séð mikið af fugli og voru menn að tala um 1 til 8 fugla. Undanfarin ár sýnist okkur hafa verið gengið mjög nærri rjúpnastofninum á Vesturlandi  og hefur Holtavörðuheiðin verið mjög auglýst bæði í fjölmiðlum og blöðum og ef fer sem horfir verður hann  sjálfsagt  útdauður þar, þá líklega opnar FRÚ umhverfisráðherra aðgengi að Landnámi Ingólfs og lætur  skipulega drepa stofninn þar eins og hún er búin að gera á Vestulandi.
Frá því að þessi stýring á veiðum tók gildi tel ég að sportveiði sem slík hafi verið lögð af, það sem ég sakna er ekki magnveiðin heldur sportið að geta  farið þegar mér hentar  og þangað sem mér hentar en ekki láta smala öllum veiðimönnum á Holtavörðuheiði Bröttubrekku og almennt Vesturlandið. Hitti þrjá unga menn á Sunnudag og fórum við að spjalla og kom þá í ljós að þetta voru Húsvíkingar með tvo veiðihunda og sögðu þeir að það væri lítill fugl á heimaslóðum en höfðu  heyrt að það væri  mikill fugl á Holtavörðuheiði!!!!!
Á þeim 35 árum sem ég hef gengið til rjúpna hef ég aldrei séð jafn lítið af fugli og í ár .
Það er sjálfsagt að hafa sölubann og biðja veiðimenn að veiða hóflega en á lengri tíma t.d tvo mánuði.
Það er alveg galið að senda 2-3000 manns upp til heiða jafnvel í vondum veðrum til ná sér í jólamatinn og tel ég það ekki vera umhverfisráðherra að þakka að enn hefur ekki orðið slys, en ef svo færi mætti hún hugsa sig um.

25.10.2012 10:00

Feðin suður

Á sunnudeginum á Akureyri fórum við með barnabörnin í Kjarnaskóg og var það mjög gaman, svo fórum við með Einari Halli inn í sveit, en hann hafði keypt sér lambaskrokk og þurfti að fá svolítið meira sagað og fórum við að bæjum sem heita Punktu, Komma og svo man ég ekki nafnið á þriðja bænum en það var ekki komma.
Keyrðum svo í bæinn um kvöldið og norðurljósin óhemju falleg ,sérstaklega á Miðfjarðarhálsinum.
Svo er rjúpan að byrja núna, veðurspáin slæm en við ætlum að kíkja.
emoticon M

13.10.2012 23:05

Akureyri

Þá erum við stödd á Akureyri í blíðskaparveðri og þægilegheitum hjá okkar fólki, fórum á smá búðarrölt við mæðgurnar með Davíð Má og Hellga Þór, hinir strákarnir fóru að kíkja á Vaðlaheiðar framkvæmdir og skoða bæinn.  Frábær kvöldmatur í kvöld og svo horft á Marlin á ruv.is
sjáum til hvað við gerum á morgun...........
:)M

04.10.2012 23:04

Pétursborg

Við hjónin ásamt Kalla og Hafrúnu fórum til Pétursborgar miðvikudaginn 26.sept, það var flogið til Helsinki og þaðan farið með rútu til Rússlands og var það fimm tíma ferð.
Við urðum að fara í gegnum þrjú tollhlið og tók það töluverðan tíma, en seinagangurinn hjá þeim er víst vel þekktur.En ferðin gekk vel fyrir sig. Tímamunurinn er þar 4 tímar+

Á fimmtudeginum var farin skoðunarferð  um miðbæinn og saga borgarinnar sögð og frá því helsta sem fyrir augu bar. Síðan var farið í virki Péturs og Páls en þar er Péturskirkja sem er ægifögur og grafir allar Romanov keisaraættarinnar og er allt þar gulli slegið og grafirnar úr eðalgrjóti eins og myndirnar sýna.Í Péturskirkju sungu 5 munkar fyrir okkur helgisöng með djúpum bassa.
Í eftirmiddaginn fórum við í Nikolayevsky höllina sem er mjög flott höll og gullslegin, þessi höll var byggð á fyrri hluta 19 aldar fyrir Nikolay son Nikulásar I keisara. Þessi höll er talin ein ag fegurstu byggingum St.Pétursborgar.
Þar sáum við ekta rússnenska skrautsýningu með kósakkadansi, balalæku spili, söng og fimleikum.
Í hléinu var boðið upp á ¨léttar veitingar¨kampavín (sem var þrusu gott), vodka, snittur og smárétti.

Um kvöldið borðuðum við á 8 hæðinni á hótelinu okkar en við gistum á Hotel Moskvu og var mjög góður matur þar.  
Það sem við tókum einna fyrst eftir var hvað borgin er hrein og snyrtileg og afar fögur.

Á föstudeginum var farið í Vetrarhöllina  og Hermitage safnið og eru listaverkin þar eftir frægustu listamenn heims eins og Pikasso, Rafaello, Micehangelo og sáum einnig styttu eftir Thorvaldsen
maður með hund.
Við fórum úr rútunni við markaðinn, skoðuðum Blóðhöllina og er hún ótrúlegt listaverk öll lögð  mosaikflísum.
Þaðan  röltum við upp á hótel, kíktum í búðarglugga og skoðuðum götulífið, borðuðum kjúkling á einum matsölustaðanna.

Á laugardeginum fórum við og skoðuðum minnis merki um 900 daga umsátrið um Leningrad og varð maður hálf dapur þegar farið var í gegnum neðanjarðarbyrgið.
Næst var farið í gosbrunnagarðinn í Peterhoff, höllin þar er ein af sumarhöllum Romanov ættarinnar  en garðurinn þar er mjög frægur og einstaklega fallegur og er talinn jafnvel fegurru en Versalagarðurinn.
Næst var farið í Podvorija og snæddur kvöldverður að rússneskum sið, 5 rétta málsverður með vodka,léttvínum og skemmtiatriðum.

Á sunnudeginum var dagskrá að eigin vali. Við byrjuðum á að BORGA okkur inn í kirkjugarðinn gamla en þar hvíla margir frægir rússar, skáld og listamenn og er alveg ótrúlegt hvað mikið hefur verið lagt í styttur og allt umkverfi þar en verið er að takaí gegn hinn garðinn.
Þá tókum við Metróinn niður í bæ og ákváðum að skoða sumarhallargarðinn en lentum í svo mikilli úrhellisrigningu að það var ekki þurr þráður á okkur, en við létum okkur hafa það og voru þarna miklir gosbrunnar en ekki eins og í Peterhof, tókum svo metróinn heim aftur fengum okkur að borða og fórum snemma í háttin þar sem við þurftum að vakna kl.4 að morgni.

Á mánudag lögðum við af stað heim á leið kl. 5 að morgni við vorum tvo og hálfan tíma að landamærunum og þegar komið var þar í gegn tóku við finnskar lendur, skógar og vötn .
Við vorum tímalega komin í Helsinki svo við fengum bíltúr um bæinn og skoðuðum Klettakirkjuna sem í upphafi var notuð til að  geyma sprengjur í og svo var þessi staður einhvernveginn alltaf útundan þanga til einhverjum datt í hug að gera þar kirkju og var hún vígð 1961 og hefur haft töluvert aðdráttarafl fyrir ferðamenn. Næst var farið á flugvöllinn og svo flogið heim.
Frábær ferð og eftirminnileg, höfðum einnig góðan fararstjóra sem býr í Pétursborg og heitir Pétur Óli Pétursson og er alveg hafsjór af fróðleik.
emoticon M


12.09.2012 23:22

12.september

Jæja, það er búið að vera nóg að gera hjá mér undanfarið, við fórum á gæs um síðustu helgi og lentum í skítaveðri snjókomu og hiti við frostmark, en við fengum 5 fugla.
Óvíst að við komumst aðra ferð vegna veðurs, nema einhver bjóði mér í góðan akur". í dag var ég á þingi Sambands lífeyrisþega ríkis og bæjar og var sett þar í stjórn sem ritari.
Svo fer nú að líða að Rússlandsferðinni okkar, en við ætlum að eyða nokkrum dögum í Pétursborg og hlakkar mig mikið til, vonandi þarf ég ekki að drekka óblandaðan vodka þar.
Það er óttalegt vesen að fá landvistarleyfi þar, mikil pappírsvinna og hlaup í sendiráðið, en vonandi þess virði.
emoticon M

29.08.2012 22:29

Ágústmánuður

Það er búið að vera mikið að gera í þessum mánuði, við seldum húsið okkar í Logafoldinni og keyptum okkur íbúð í Ásakórnum á efstu hæð.
Svo var farið í gegnum búslóðina og mörgu var fleigt og annað gefið, þetta var 30 ára safn af ýmsu dóti og viðbrigðin mikil að fara úr 4 svefnherbergjum í tvö, en nú er þetta allt komið í sæmilegan farveg hjá okkur þó maður sakni margs úr Logafoldinni, en hér höfum við meiri víðsýni.
Nú ætti að fara að koma tími til að kíkja eftir gæs og slaka svolítið á.
Gott að sinni.
emoticon M

07.08.2012 22:14

Verslunarmannahelgin

Áttum  góða helgi í Sanddal,
 fallegt veður og mikið sullað í ánni af unga og eldra fólki líka .
Vorum að bera á húsið og pallinn svo var slegið og tínd ber sem eru ótrúlega vel þroskuð.
Annars allt í miklum rólegheitum.
Gætu orðið erilsamar vikur framundan.

emoticon M


21.06.2012 12:37

Ferð eldri borgara hjá SFR

Það er orðið ansi langt síðan ég hef skrifað nokkuð, það er ekki af því að það sé ekkert um að vera.Það er bara búið að vera mikið að gera.
Ég er búin að vera með barnabörn allan mánuðinn og á eftir að setja inn helling af myndum.
En í gær var farin sumarferð eldri borgara hjá SFR og byrjaði ferðin á Grettisgötu 89 og lá leiðin austur fyrirfjall og haldið inn Fljótshlíðina stoppað að Breiðabólstað og kom presturinn Önundur Björnsson og hélt smá tölu um fyrrum presta og fleiri góða menn sem var gaman og fróðlegt. svo var haldið inn í Þórsmörk, vegurinn var slæmur, lítið vatn í ánum en þokkalegt veður, skýjað og gott ferðaveður.
Þar borðaði fólk nestið sitt og skoðaði sig um, alltaf jafn fallegt í Mörkinni. Svo var aðeins kíkt inn í Stakkholtsgjá og þaðan var haldið á Hvolsvöll og bauð SFR okkur upp á flottan mat og rauðvín,
Það varð eitt slys í ferðinni kona var að fara upp í rútu og skrikaði fótur , bar hún hendina fyrir sig og brotnaði únliður hennar við það, SFR var með hjúkrunarfræðing með í ferðinni og kom það sér vel og kom hún konunni til læknis fyrst á Hvolsvelli en var send þaðan á Selfoss.
Frábær ferð með frábæru fólki.
Borgin tók á móti okkur með sólstöðum.
Takk
emoticon M

28.04.2012 21:54

Vor

Jæja, nú er orðið langt síðan ég skrifaði síðast á síðuna. Hjá okkur hefur veturinn liðið nokkuð tíðindalaus og allir við sæmilega heilsu.
Höfum farið nokkrum sinnum í dalinn og svo fórum við að Apavatni um páskana, skruppum líka á Akureyri í febrúar. Vorum í dalnum um síðustu helgi í góðu veðri, björtu en köldu nema í skjóli þar var hlítt og gott.
Gerðum hefðbundin vorverk, girtum með ánni, fluttum tré og allt var viðrað svo nú má sumarið bara koma.Sáum töluvert af rjúpum svo var hrossagaukurinn kominn og maríuerlan gerði sig heimakona og lleitaði sér að hreiðurstæði, þrösturinn söng hástöfum og krummi kallinn kom og kíkti á matarpallinn.
Við æfðum okkur í skotfimi (skeet) og höfðum bara gaman.

emoticon M

23.01.2012 05:44

Þorrinn

Við áttum góða helgi í Sanddal, hylltum Þorra og goðin hans Kalla.
Það var snjókoma og skafrenningur á leiðinni uppeftir en svo lagaðist veðrið með kvöldinu.
Borðuðum þorramatinn hjá Kalla og Hafrúnu og vorum þar í góðu yfirlæti fram eftir kvöldi.
Á Laugardag fórum við inn dal og upp að Gestsstöðum og þá þurfti að hleypa úr niður í 10 pund og gekk þá allt þokkalega.
Sigurgeir gekk hlíðina og rak upp fyrst, 8 rjúpur svo 6 en þegar við komum niður í bústað flaug ein í fangið á okkur, sáum för og heyrðum gagg í einni tófu, heyrðum líka væl í fálka.
Fín ferð..
emoticon M

Flettingar í dag: 65
Gestir í dag: 37
Flettingar í gær: 133
Gestir í gær: 22
Samtals flettingar: 343304
Samtals gestir: 30468
Tölur uppfærðar: 21.11.2024 09:25:36

Eldra efni

Nafn:

María Gunnarsdóttir

Farsími:

8991904

MSN netfang:

mariabg@hi.is

Heimilisfang:

Ásakór 11

Uppáhalds tónlist:

Country, Cliff og íslenskt

Uppáhalds matur:

Villibráð
clockhere

Tenglar