Velkomin á bloggið mitt Hér verður svona sitt lítið af ýmsum áhugamálum mínum. |
|
08.11.2007 15:45Allt er breytingum háðVið fórum ekki á fjall í morgun ,en það var 8° frost og fallegt veður, vonandi eiga eftir að koma góðir dagar síðar í mánuðnum, en Klara mágkona fékk heilablóðfall í gær og skildi við um miðnættið í gærkveldi, svo við tókum okkur saman og drifum okkur heim. M 06.11.2007 16:26Leiðinda dagarHér er skítaveður, fórum yfir Bröttubrekku og í Búðardal til að versla komum við í Hjarðarholti og vorum að kíkja á grafhýsi Þorbergstaðarættarinna og er það mjög huggulegt, en þar sáum við líka 4 rjúpur og húktu þær undir kirkjugarðsvegg. Fórum svo Laxárdalsheiði til baka ekkert að sjá þar nema endalausar mýrar, vonandi fer nú veðrið að lagast. M 04.11.2007 14:28Aðeins farin að sjá fuglaÁ öðrum degi á rjúpu fórum við í Lambagilið fengu 2 þar, svo var arkað í átt að Grænuborgum og tíndar upp nokkrar á á þeirri leið, vorum með alls 12 þann daginn, það var þoka og úði en ágætis veður. Kíktum upp að Búrfellsá og þar um slóðir voru engir bílar. Erum núna á planinu þar sem sæluhúsið stóð og höfum ekki farið úr bíl hér er hífandi rok og gengur á með éljum, það eru tveir bílar við Miklagilið og sjáum við tvo menn í móanum fyrir neðan Tröllakirkjuna.Þá er bara að bíða eftir fimmtudegi og vona að veðrið skáni. 01.11.2007 17:46Rjúpa, hvað er nú þaðÍ morgun var fallegt veður austan andvari og 8° frost fór að vísu yfir 10° fórum Fornahvammssneiðinginn og skildum bílinn eftir við Lambatjörn gengum Gesstaðabunguna, Ormstaðamúlann ,Hádegisfjallið,og svo aftur yfir allt og í Smiðjumúlann líka sáum engan fugl og engin ummerki eftir fugl , göngufærið djöfullegt svo þetta var allt á sömu bókina lært, Sigurgeir tók svo Lambagilið niður að Hvassá ekkert!!!!! Það voru um 30 bílar á heiðinni og voru menn með ekkert og sáu ekkert, 4 voru í Sandinum voru farnir niður fyrir hádegi. Nú er komið skíta veður við sjáum til hvað við gerum á morgun M 31.10.2007 20:14Klár á rjúpunaÞá erum við komin til fjalla en hér hefur verið norðanátt nokkuð stíf og éljagangur, kíktum á aðstæður á heiðinni í dag og er ekkert mjög mikill snjór, sáum för eftir einn fugl . Erum búin að gera okkur klár fyrir morgundaginn en erum ekki alveg búin að ákveða hvert við förum ,spáin er ekki góð þannig að við tökum bara ákvörðun í fyrramáli. Enginn kominn í dalinn en við heyrðum af einhverjum sem ætla í Sandinn á morgun. M 26.10.2007 22:52Prófin búinJæja þá eru prófin búin og þá er að bíða eftir einkunum en ég fékk nú út úr fyrsta prófi í gær sem var siglingarfræði og þar fékk ég ansi gott eða 10 fæ úr hinum á morgun. M 25.10.2007 22:40PrófJæja nú er lítill tími til að vera á netinu því allur tíminn fer í að lesa undir próf. Fyrsta prófið var í kvöld og gekk það þokkalega, klára svo á morgun. M 14.10.2007 02:15Ljúft laugardagskvöld með góðum vinumVið áttum notalega kvöldstund hjá Margréti og Jónatani og kom Maggí systir með okkur uppeftir.Var okkur boðið upp á myntute úr garðinum þeirra og var það mjög gott ,síðan var sest að snæðingi og var þar á borðum hreindýr með ýmsu lostæti eins og það gerist best t.d stikilber úr garðinum þeirra og hef ég ekki smakkað þau áður . Var svo spjallað fram eftir kvöldi og í lokin vorum við leyst út með dýrindis perlum frá Kínaströnd, ekki dónalegt það. Bestu þakkir kæru hjón. M 07.10.2007 18:23Hin árlega rjúpnatalningFrábært veður í dag. Við ákváðum að það væri tilvalið að nota daginn til rjúpnatalningar eins og við gerum árlega á þessum tíma árs. Við vorum rétt komin upp að Úlfarsfelli þegar við sáum slatta af strákum (körlum)á dýru leikföngunum sínum og eyddu við næsta klukkutímanum í að horfa á þá á snjósleðum, bílum,fjórhjólum og motorhjólum og Svifflugvélum og var meiri háttar að sjá hvernig þeir fóru yfir Leirtjörnina en myndirnar tala því máli. Fórum síðan Hafravatnshringinn og sáum 5 rjúpur sem er mun meira en í fyrra en þá sáum við enga, en 11 árið á undan. Fórum svo til Hrannar og fengum kaffi og pönnukökur og fínerý, breytingin á svefnherberginu er meiriháttar flott eins og allt heimilið. Í gær átti bóndinn afmæli og kom fullt af fólki í kaffisopa það var mjög gaman. M 29.09.2007 19:58Ekki er nú öll vitleysan eins Þá er maður orðinn tölvutengdur í dalnum en ég fékk mér netkort um daginn og er að vígja það núna. Hér voru smalamenskur í dag, það var hlutlaust veður hlýtt og skúrir kíktum á heiðina en sáum engar gæsir bara mikið af álftum.Ég setti upp útiljós og nýtt ljós á baðið Árni bróðir hringdi í mig í gærkveldi þá nýkominn heim frá spáni og höfðu þau hjónin ásamt Dísu systir ráðist í að kaupa íbúð rétt fyrir utan Torrevaja á rúmar 15 milljónir, ekki dónalegt það. Fólk virðist hafa ómæld fjárráð þessa dagana. M 26.09.2007 15:52366 hektarar sem alltaf eru á kafi í snjó!!!!!!!!!!.Halló Alveg er það makalaust hvað margt fólk á mikinn pening, við vorum að gera tilboð í smá skika norður í Fljótum og reiknuðum nú ekki með að hann færi á háar upphæðir ,en annað kom nú á daginn, þetta er gömul eyðijörð sem er með litlu undirlendi einni smá ársprænu og enginn vegur og vorum við að hugsa um hann til rjúpnaveiða. Það var alveg fjöldi tilboða sem bárust eða um 50 st og var hæðsta tilboðið tæpar 16 milljónir, hvað er í gangi??. Ætli þessi jörð falli svo ekki undir óbyggðanefnd því hún nær upp í 800 metra. Þá er nú betra að hugsa bara um smá skektu, nema þessir karlar kaupi sjóinn líka, hvur veit. M 24.09.2007 17:38SkólinnÞá er skólinn byrjaður hjá mér, en ég ákvað að taka 30 rls réttindin í Fjöltækniskólanum eða öðrum orðum pungaprófið og er þetta ansi fróðlegt sem komið er. Það kannski endar nú með því að ég læri á áttavita en mér hefur stundum orðið á að rengja hann í þoku svo ég hef farið eftir Gps tækinu mínu.Núna er ég að stinga út staðsetningar á sjókortum og er það bara skemmtilegt þó svo að maður sigli svo sjálfsagt eftir Gps tækjum ef maður fær sér einhverntíman einhverja skektu. M 18.09.2007 00:32Brúðkaupið fyrir norðanJæja. Þá er búið að koma dótturinni í hnapphelduna, en það var mjög falleg og vel lukkuð athöfn og fín veisla á eftir, en Dagga mágkona Andrésar var veislustjóri og fórst henni það vel úr hendi, hún sá einnig um að syngja einsöng bæði í kirkjunni og í veislunni með undirspili pabba síns og systur og var það mjög vel gert, hún flutti lagið Brú yfir boðaföllin í kirkunni og svo lögin Þú ein frá Andrési til Dísu og Ég fann þig frá Dísu til Andrésar. Svo hjálpuðust allir að við að gera veisluna fína og ganga frá á eftir. Ég var voða fegin að Hrönn mágkona hjálpaði mér bæði kvöldið fyrir veislu við að setja saman kökur og gera heita rétti og einnig við að ganga frá en ég var orðin ansi þreytt og slæm í höndunum . En þetta var hreint frábær helgi bjart og fallegt veður á laugardeginum en ansi svalt eða við frostmark. Komum heim á mánudagseftirmiddegi en þá fór ég í fyrsta tímann í Fjöltækniskólanum . M 11.09.2007 22:26GlæsigripurÞað held ég nú að maður sé bara broshýr og glaður, en ég fékk nýja Berettu Ulriku 391 í hendurnar í dag alveg tilsniðna fyrir mig og hörkuglæsilegur gripur sem bóndi minn gaf mér og "nota bene" fyrsta nýja haglabyssan sem ég eignast, en hún er 3ja skota gasskipt.Svo er bara að fara að æfa sig, en má nú ekki vera að því fyrr en eftir helgi. Svo er stóri dagurinn hjá Dísu á laugardaginn en þá ætla þau Andrés að láta pússa sig saman. M 28.08.2007 22:27MeyjaÞá er afmælisdagurinn að kveldi kominn og hefur hann verið friðsæll og góður. Fékk tvo kærkomna gesti í heimsókn þá bræður Jónatan og Grím og áttum við notalegt spjall og spádóma. Þakka allar afmæliskveðjurnar í dag . M Flettingar í dag: 252 Gestir í dag: 107 Flettingar í gær: 133 Gestir í gær: 22 Samtals flettingar: 343491 Samtals gestir: 30538 Tölur uppfærðar: 21.11.2024 10:47:03 |
Eldra efni
Nafn: María GunnarsdóttirFarsími: 8991904Tölvupóstfang: mariagunnars@gmail.comMSN netfang: mariabg@hi.isHeimilisfang: Ásakór 11Uppáhalds tónlist: Country, Cliff og íslensktUppáhalds matur: Villibráðclockhere Tenglar
|
© 2024 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is