Þá er þessum dögum lokið sem mátti veiða þetta haustið og var veður ansi risjótt og voru bara 2 góðir dagar. Það er áberandi lítið af fugli á Vesturlandi og þurfti að hafa mikið fyrir því að ná í jólamatinn.
En þetta er alltaf jafngaman, síðasti dagurinn var albestur 10 stiga frost, bjart og logn svo maður naut náttúrunnar alveg í botn og þá er nú tilganginum náð .
María