Þá er þorrinn vel hálfnaður og maður er búinn að eta mikið af þorramat. Var á þorrablóti í gær hjá Lífeyrisdeild SFR og var góð mæting og mikill matur, harmonikkuspil, söngur, upplestur og mælt fyrir minni kvenna. Í dag kíktum við í bollukaffi til Soffíu og hittum þar fyrir Kalla og Hafrúnu svo byrtust Stefán og Díana, svo það var bara glatt á hjalla. Svo förum við í afmæli á laugardaginn til Heiðars, þannig að það eru eilíf veisluhöld. Annars er allt í rólegheitum M