Velkomin á bloggið mitt Hér verður svona sitt lítið af ýmsum áhugamálum mínum. |
|
04.10.2012 23:04PétursborgVið hjónin ásamt Kalla og Hafrúnu fórum til Pétursborgar miðvikudaginn 26.sept, það var flogið til Helsinki og þaðan farið með rútu til Rússlands og var það fimm tíma ferð. Við urðum að fara í gegnum þrjú tollhlið og tók það töluverðan tíma, en seinagangurinn hjá þeim er víst vel þekktur.En ferðin gekk vel fyrir sig. Tímamunurinn er þar 4 tímar+ Á fimmtudeginum var farin skoðunarferð um miðbæinn og saga borgarinnar sögð og frá því helsta sem fyrir augu bar. Síðan var farið í virki Péturs og Páls en þar er Péturskirkja sem er ægifögur og grafir allar Romanov keisaraættarinnar og er allt þar gulli slegið og grafirnar úr eðalgrjóti eins og myndirnar sýna.Í Péturskirkju sungu 5 munkar fyrir okkur helgisöng með djúpum bassa. Í eftirmiddaginn fórum við í Nikolayevsky höllina sem er mjög flott höll og gullslegin, þessi höll var byggð á fyrri hluta 19 aldar fyrir Nikolay son Nikulásar I keisara. Þessi höll er talin ein ag fegurstu byggingum St.Pétursborgar. Þar sáum við ekta rússnenska skrautsýningu með kósakkadansi, balalæku spili, söng og fimleikum. Í hléinu var boðið upp á ¨léttar veitingar¨kampavín (sem var þrusu gott), vodka, snittur og smárétti. Um kvöldið borðuðum við á 8 hæðinni á hótelinu okkar en við gistum á Hotel Moskvu og var mjög góður matur þar. Það sem við tókum einna fyrst eftir var hvað borgin er hrein og snyrtileg og afar fögur. Á föstudeginum var farið í Vetrarhöllina og Hermitage safnið og eru listaverkin þar eftir frægustu listamenn heims eins og Pikasso, Rafaello, Micehangelo og sáum einnig styttu eftir Thorvaldsen maður með hund. Við fórum úr rútunni við markaðinn, skoðuðum Blóðhöllina og er hún ótrúlegt listaverk öll lögð mosaikflísum. Þaðan röltum við upp á hótel, kíktum í búðarglugga og skoðuðum götulífið, borðuðum kjúkling á einum matsölustaðanna. Á laugardeginum fórum við og skoðuðum minnis merki um 900 daga umsátrið um Leningrad og varð maður hálf dapur þegar farið var í gegnum neðanjarðarbyrgið. Næst var farið í gosbrunnagarðinn í Peterhoff, höllin þar er ein af sumarhöllum Romanov ættarinnar en garðurinn þar er mjög frægur og einstaklega fallegur og er talinn jafnvel fegurru en Versalagarðurinn. Næst var farið í Podvorija og snæddur kvöldverður að rússneskum sið, 5 rétta málsverður með vodka,léttvínum og skemmtiatriðum. Á sunnudeginum var dagskrá að eigin vali. Við byrjuðum á að BORGA okkur inn í kirkjugarðinn gamla en þar hvíla margir frægir rússar, skáld og listamenn og er alveg ótrúlegt hvað mikið hefur verið lagt í styttur og allt umkverfi þar en verið er að takaí gegn hinn garðinn. Þá tókum við Metróinn niður í bæ og ákváðum að skoða sumarhallargarðinn en lentum í svo mikilli úrhellisrigningu að það var ekki þurr þráður á okkur, en við létum okkur hafa það og voru þarna miklir gosbrunnar en ekki eins og í Peterhof, tókum svo metróinn heim aftur fengum okkur að borða og fórum snemma í háttin þar sem við þurftum að vakna kl.4 að morgni. Á mánudag lögðum við af stað heim á leið kl. 5 að morgni við vorum tvo og hálfan tíma að landamærunum og þegar komið var þar í gegn tóku við finnskar lendur, skógar og vötn . Við vorum tímalega komin í Helsinki svo við fengum bíltúr um bæinn og skoðuðum Klettakirkjuna sem í upphafi var notuð til að geyma sprengjur í og svo var þessi staður einhvernveginn alltaf útundan þanga til einhverjum datt í hug að gera þar kirkju og var hún vígð 1961 og hefur haft töluvert aðdráttarafl fyrir ferðamenn. Næst var farið á flugvöllinn og svo flogið heim. Frábær ferð og eftirminnileg, höfðum einnig góðan fararstjóra sem býr í Pétursborg og heitir Pétur Óli Pétursson og er alveg hafsjór af fróðleik. M Flettingar í dag: 25 Gestir í dag: 10 Flettingar í gær: 144 Gestir í gær: 21 Samtals flettingar: 345496 Samtals gestir: 30733 Tölur uppfærðar: 23.11.2024 08:51:25 |
Eldra efni
Nafn: María GunnarsdóttirFarsími: 8991904Tölvupóstfang: mariagunnars@gmail.comMSN netfang: mariabg@hi.isHeimilisfang: Ásakór 11Uppáhalds tónlist: Country, Cliff og íslensktUppáhalds matur: Villibráðclockhere Tenglar
|
© 2024 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is