Fór með skólanum í dag um Suðurnesin og var veðrið svona la la en þræl gaman, tók um 200 myndir og svo er bara að athuga hvort nokkuð sé nothæft af þeim, ætla að skoða þær betur áður en ég set þær inn á síðuna, en maður er alltaf að læra eitthvað nýt t.d þríhyrningsdæmið sem Vigfús kennari talaði um við okkur og svo bara að læra á myndavélina tíma, ljósop og hraða þetta síast hægt og rólega inn sjálfsagt.
M