Þá er veturinn búinn að kíkja við hér hjá okkur á höfuðborgarsvæðinu og er það bara fínt, ég er byrjuð í Myndlistaskólanumm úti í JL-húsi og líst mér vel á framhaldið þar,við eigum að vera í verklegri ljósmyndun á laugardögum og bóklegu á mánudögum.
Svo verður maður bara að vera duglegur að æfa sig og vinna á tölvuna, það er svona að brjótast í mér hvort ég eigi að fá mér Makka, hugsa málið í einhvern tíma!!
Var að fá mér fjarstýringu á myndavélina og hún er ekki að virka, svo ég fer með hana í búðina á morgun.
Einar Hallur var í bænum um síðustu helgi, og var það bara gaman. Mamma er núna í Holtsbúð og er hún ekkert sérstaklega ánægð þar enda lítið um að vera!!
M