Flettingar í dag: 25
Gestir í dag: 10
Flettingar í gær: 144
Gestir í gær: 21
Samtals flettingar: 345496
Samtals gestir: 30733
Tölur uppfærðar: 23.11.2024 08:51:25

Velkomin á bloggið mitt

Hér verður svona sitt lítið af ýmsum áhugamálum mínum.

17.05.2010 21:56

Góð helgi, nýjar myndir

Dísa og fjölskylda komu í bæinn á fimmtudaginn og var mjög gaman að fá að hafa þau um helgina.
Strákarnir voru svolítið trekktir af tilhlökkun og höfðu vaknað um kl 5 um morguninn og fóru seint að sofa.Svo fóru þau í búðir og svoleiðis á föstudeginum og kíktu svo á Völlu og Ólöfu og litlu krílin þeirra.
Á laugadeginum fórum við að hitta ellismellina og gekk það þokkalega. Svo var Andrés að keppa í fótbolta hjá Eimskip, en starfsmennirnir hjá þeim hittast einu sinni á ári og spila saman. norðanmenn komu með bikarinn með sér þar sem þeir unnu í fyrra og fóru einnig með hann aftur norður núna, flott hjá þeim.
Sigurgeir var á fullu alla helgina að hreinsa allt grjót upp úr rósabeðinu fyrir framan hús og keyra það upp á Hólmsheiði og voru þetta fjórar kerrur af grjóti,þess á milli sparkaði hann bolta með strákunum eða spilaði við þá, svo fór moldin niður í garð og rósirnar í poka, en þær fara í sveitina. Fengum svo 3 rúmmetra af hellusandi í dag, svo það er nóg að gera framundan.
Ég er búin að gróðursetja sumarblómin og hreinsa hólinn og þá er hallinn eftir.
Krakkarnir fóru svo heim um hádegi á sunnudag og gekk þeim vel, en ég held að hjónakornin hafi alveg verið uppgefin þegar þau komu heim Dísa (kasólétt) eftir búðarráp og Andrés eftir boltann og bæði með sár á fótunum.
emoticon M
Flettingar í dag: 25
Gestir í dag: 10
Flettingar í gær: 144
Gestir í gær: 21
Samtals flettingar: 345496
Samtals gestir: 30733
Tölur uppfærðar: 23.11.2024 08:51:25

Eldra efni

Nafn:

María Gunnarsdóttir

Farsími:

8991904

MSN netfang:

mariabg@hi.is

Heimilisfang:

Ásakór 11

Uppáhalds tónlist:

Country, Cliff og íslenskt

Uppáhalds matur:

Villibráð
clockhere

Tenglar