Við áttum góða daga í Dalnum um páskana, auk okkar voru Kalli og Hafrún í dalnum og voru þeir bræður að smíða grindverk á veröndina á föstudaginn langa, en þeir völdu þann dag af því að hann er svo asskoti langur. Svo var farið í bíltúra og fjórhjólatúra, borðaður góður matur með rauðvíni og ýmsum öðrum göróttum drykkjum og slakað á við lestur og leti.
Svona eiga góð frí að vera!
M