Friðjón og Soffía buðu okkur á Suðurnesjarúnt og fórum við upp úr hádegi og lá leiðin í gegnum Grindavík og í HS Orkuverið og var þar margt að skoða, flottir salir hjá þeim. Heimasíðan þeirra er www.hs.is
Svo lá leiðin út á Stafnes og til Sandgerðis og út á Garðskaga fengum okkur kaffi á Kaffihúsinu Flösinni og skoðuðum safnið þar, fórum svo á smábátabryggjurnar sem voru á okkar leið og kíktum eftir flottum bátum, erum búin að skipa Soffíu sem bryta og Sigurgeir sem vélstjóra, kyndara og háseta á verðandi far, ekki slæm áhöfn það. Virkilega gaman.
M