Það er eitthvað ógurlega rólegt yfir okkur hjónakornunum þessa dagana, mættum á kjörstað og röðuðum á lista hjá xD, heimsóttum Kalla og Hafrúnu í gær og kíktum svo á tengdamömmu. Fengum okkur þorramat á föstudaginn og var hann ágætur.
Af barnbörnunum er það helst að frétta að Einar Geir er búinn að detta ansi oft á gifsið á handleggnum, Helgi Þór fór í svæfingu á föstudaginn og var verið að laga glerjunginn á tönnunum hjá honum, að öðru leiti hafa krakkarnir það gott. Pabbi fer til hvildarinnlagnar á Grund á morgun og verður þar í 4 til 8 vikur en fer svo vonandi að fá pláss til frambúðar, hann þekkir okkur ekki lengur og er horfinn alveg inn í alsæmerinn.
Svona vill þetta víst verða þegar fólk eldist.
Svo fer nú vonandi að koma einhver vetur svo við getum farið að fara í bústaðinn, en það er ekkert gaman að vera þar þegar allt er í drullu.
M