Þá er að komast á ró eftir jólin og lífið að fara í fastar skorður, og er það nú bara ágætt. Ekkert sérstakt á döfinni á allra næstu dögum, þarf reyndar á fjölskyldufund á þriðjudaginn þar sem tekin verður ákvörðun um hvar æskilegast sé að gamli maðurinn, hann pabbi verði. Það stendur til að koma honum inn á heimili sem kallað er Maríuhús og er fyrir heilabilaða, þar sem mamma getur ekki lengur séð um hann enda bæði orðin fullorðin. En svona er lífið, sumir verða háaldraðir og aðrir ekki, maður verður víst að sætta sig við það.