Gleðileg jól
Þá erum við búin að eiga notaleg jól á norðurlandi með fjölskyldum okkar og í jólasnjó.
Það var mikið fjör á aðfangadagskvöl þega strákarnir voru að taka upp pakkana sína og var Helgi einna rólegastur og gólaði svona af og til, það voru allir ánægðir með jólagjafirnar, ég fékk flottan síma Nokia express 5800 tónlistarsíma með gps og 16 gb minni, svo næstu dagar fara í að læra á hann.
Sigurgeir fékk líka iðnaðarmannasíma og finnst honum hann eiginlega ekki nógu einfaldur, enda 3210 alltaf bestur að hans mati.Hér er alveg ofboðslega mikill snjór og eru ruðningstæki á fullu að halda aðalgötunum opnum.