Þá eru Dísa og strákarnir komin og fórum við í Kringluna í gær og gengum okkur upp að hnjám, þá er nú þægilegra að fara til fjalla og veiða, en þetta þarf líka að gera, strákarnir voru í boltalandi á meðan við mæðgurnar röltum í búðir.
Í eftirmiðdaginn kom Erlingur og tengdi fyrir okkur vaska og krana og er það afburða snyrtilegur frágangur, takk fyrir það Erlingur minn.
Er enn að ganga frá inn í skápa og hreinsa steinrykið en það smýgur um allt.
Ætlum að gera eitthvað skemmtilegt í dag :)
M