Jæja þá er þessum áfanga náð, 60 ára er kerlingin orðin að árum og það var heljarins húllum hæ hjá okkur, var með kaffiboð á laugardaginn og tókst það bara vel. Á sunnudaginn bauð Peta vinkona mér út að borða og í leikhús á eftir og borðuðum við á Cafe Flóru og fórum svo í Loftkastalann og sáum Fúlar á móti og skemmtum okkur konunglega, ekki hlegið jafn mikið í langann tíma. Helgina þar áður fórum við í bústaðinn og fórum í ber og á gæs og fengum tvær, það var lítið flug og flugu þær mjög hátt, en veðrið var dásamlegt stilla og bjart.
M