Þá er þetta vikufrí búið og var þrumu skemmtilegt. Við vorum fyrstu helgina í sumarbústaðnum svo fórum við á þriðjudeginum til Akureyrar að hitta okkar fólk og var það mjög gaman, fórum með þeim
í bæinn á 17.júní og var veðrið ekkert spes, sæmilega hlýtt og rigning, svo fórum við Dalvík, Ólafsfjörður og Lágheiðina til baka og skruppum svo á Siglufjörð, svo kíktum við inn í Flókadalinn og virðast margir bæjir þar komnir í eyði, fengum okkur að borða á Hofsós og komum svo aðeins við á Sauðárkróki og fórum Þverárfjallið til Blönduóss en á Þverárfjalli var 3° hiti og sýndi hitamælirinn eitt rautt strik sem er viðvörun um hálku. Vorum komin í bústaðinn um kl. 7 um kvöldið.
Vorum þar um helgina, það var mikið um tófur beggja vegna árinnar alveg frá morgni til kvölds.Krummi karlinn var iðinn við að tína ungana úr hreiðrunum hjá minni fuglunum, svo var líka Kjói , Mávur og Fálki á sveimi en krummi og mávur eru komnir á veiðilistann hjá mér í náinni framtíð.
Gróðursettum nokkrar aspir og 1 hlyn, svo voru nokkur tré færð til sem voru of þétt gróðursett.