Þessi vika var nú ósköp róleg hjá mér, við fórum í smá innanbæjarbíltúr um helgina, kíktum aðeins niður á höfn og skoðuðum bátana og þar á meðal Vonina sem Elli kærasti Brynju Dísar á í félagi við pabba sinn og kannski væri hægt að plata þá til að fara með mann á svartfugl við tækifæri.
Fengum svo bollukaffi hjá Hrönn. Á þriðjudag fór ég með mömmu og pabba til læknis og i apótek svo kíkti ég til Árna og Stínu og var Dísa systir hjá þeim en hún kom snögga ferð í bæinn og var gaman að hitta hana, kíkti svo á tengdó.
M