Já það má nú segja það, allt að fara til andskotans eina ferðin enn.
Hef verið að dútla mér heima mest alla vikuna , fór í jarðaför Huldu Lilju á föstudaginn og var það sorglegt en falleg athöfn.
Í gær fórum við Vatnleysuströndina í fallegu veðri og skoðuðum fuglalífið en ég gleymdi myndavélinni heima svo það segir fátt af þeirri ferð, fórum svo í kaffi til Stefáns og Díönu, í dag fórum við til Erlings og Þuríðar og þaðan til Árna bróðirs og kíktum svo á tengdamömmu.
Það er búið að vera eitthvað ólag hjá mér í tölvumálum en svo kom ég rauternum inn í morgunn, svo er bilun á 123.is svo ég kem ekki inn myndum.
M