Gleðilegt ár öll sömul.
Tölvan mín er búin að vera með einhver leiðindi undanfarið svo ég var eiginlega búin að gefa skít í hana, en svo tókst mér að koma henni í skröltfært lag í bili.
Annars hefur nýja árið farið rólega af stað og nú er bara að ganga af sér allt spikið sem bættist við yfir hátíðarnar, reyni að fara á hverjum degi smá hring um hverfið.
Það er alveg með ólíkindum hverju fólk safnar af drasli og setur fyrir utan húsin sín, ég rakst bæði á ónýtan bát og gamlan traktor hér í næstu götu en þetta á kannski bara rétt á sér, sama er mér.
Er að bagsa við að koma vídeo upptöku inn á síðuna en það gengur ekki alveg nógu vel hjá mér svo ég verð að leita annara leiða.
M