Þá er maður búinn að skrifa jólakortin, ég var svolítið í seinna lagi með þau, var svo að pakka inn jólagjöfum í dag, þannig að það er að koma jólafílingur í mann.
Helga, amma Ívars Arnars kom með pakka sem eiga að fara norður, svo við komum pakka til Ívars á hana.Ég held ég sé bara búin að kaupa allar jólagjafir nema handa bóndanum, en ég er enn að velta fyrir mér hvað ég eigi að gefa honum! vonandi dett ég niður á eitthvað sem hann hefur gaman af, kannski bara eitthvað landakort hann getur endalaust skoðað kort af landinu okkar og svo kannski einhverja fræðibók um Ísland ja hvur veit?
M