Við njótum lífsins hér í okkar fjallakofa. Í dag er fallegt veður logn og 0° hiti smá grámi yfir öllu. Skruppum í Staðarskála bara svona til að skoða nýja skálann. Það hefur gengið illa hjá mér að setja inn myndir tengingin er svo hæg geri það bara þegar ég kem heim.. Við erum að verða búin að fylla okkar veiðikvóta í ár, ætlum aðeins að kíkja á morgun. Það standa yfir smalamennskur öðru megin í dalnum þessa dagana, svo eru 10 rollur Sveinatungumegin , betra seint en aldrei, annars eru 20 til 30 rollur í Fornahvammslandinu ennþá, þeir ætla kannski að selja veiðileyfi á þær.
M