Við fórum á laugardaginn upp að Hafravatni og nágreni til að athuga hvort ekki væri allt vaðandi í rjúpu á þessu friðaða svæði til margra ára.
Það var fallegt veður en við sáum 1. rjúpu og annarstaðar för eftir aðra, en við sáum tvær kanínur svo ekki er útlitið gæfulegt.
(Förum bara á kanínuveiðar)Fórum í afmæli á sunnudeginum til Guðnýjar Kristínar og var það voða gaman.
Í gær kom Hafdís og fjölskylda í bæinn en Einar Geir þurfti til læknis svo fara þau heim í fyrramálið.
Við Helgi Þór fórum út að labba í morgun, fórum í búðina og bakaríið og labbaði hann báðar leiðir en svo sofnaði hann á meðan ég var að laga matinn hans, þreyttur blessaður, hann er mjög góður ef foreldrarnir eru hvergi nálægir, það er nú þannig með flest börn.
M