Þessi vika hefur eiginlega ekki verið neitt skemmtileg, allt svo neikvætt og allt á hausnum, ríkisstjórnin gerir ekki neitt nema skoða málin alveg endalaust svo nú er mál til komið að hún taki á hlutunum ella fari bara frá, þá væri þetta nú fullkomnað, kannski hægt að bæta eins og einu eldgosi við já og svo fárviðrinu sem á að koma í nótt, flott flott flott.
Annars kom Aðalheiður til mín á þriðjudag og vorum við að dúlla okkur í tölvunni hennar, svo komu Friðjón og Soffía í kvöldkaffi og á morgun kemur Unnar til mín en það er skólafrí núna, svo fer Dísa norður á morgun.
M