Jæja, þá er dagur að kveldi kominn einu sinni enn og alltaf versna þjóðmálin, svo maður bara á ekki til eitt aukatekið orð né
aur lengur, því kókaínliðið er búið að ræna hvern einasta mann á landinu
og svo eru þeir svo miklar skræfur að þeir loka sig inni með lífverði allt um kring eða eru farnir úr landi, svo skil ég ekki af hverju eignir þeirra hér og erlendis eru ekki teknar eignarnámi eins og hjá hverjum öðrum sem verður gjaldþrota, maður gæti haldið að æðstu ráðamenn væru hræddir við þá!
Annars heldur daglega lífið áfram þó allt sé farið til andskotans.
Hér á myndinni eru Sigurgeir,Kalli og Óli en þeir komu(sko Kalli og Óli) og borðuðu hjá mér villibráð, en ástæðan fyrir því að ég er með villibráð svona á virkum deg er sú að ég var að elda fyrir Gestgjafann en þeir ætla að gefa út sér villibráðarblað.
Það verður svo aldeilis fjör hjá okkur á morgun en þá koma Einar Geir og Helgi Þór með pabba sínum í bæinn og verða þeir fram á sunnudag.
M