Það er óhætt að segja að það hafi mikið gengið á í þjóðfélaginu okkar í dag, allt orðið ríkisrekið aftur og þjófarnir farnir úr landi með aurana okkar, en lífið er eilífðar hringrás, ef horft er til fortíðar þá segir sagan okkur að á ca 100 ára fresti ganga yfir heiminn einhverskonar kreppur. Síðast er talað um heimskreppuna miklu sem var á öðrum tug nítjándu aldar, en svo rísum við upp og byrjum bara aftur þannig er nú bara lífið.
Annars vorum við í afmælisveislu hjá Kristínu mágkonu á laugardagskvöldið og var það vel lukkuð og skemmtileg veisla.
Svo átti nú bóndi minn afmæli í dag og kom allt Staðargengið í kaffisopa og var það bara fínt.
M