Það þýðir helvíti lítið að reyta hár sitt eins og ástandið er á fjármálamörkuðum í dag, bara að taka því rólega og gá hvort sparnaður fólks skili sér ekki aftur þegar frá líður, allavega ætla ég ekki að fara á taugum að svo komnu máli þó maður eigi smáhlut í banka, huga bara að einhverju skemmtilegra næstu mánuðina og vera sparsamur eða næstum því samansaumaður á budduna.
Fór í strípur og klippingu í dag og kaffisopa til tengdó. Fer í skólann í kvöld.
M