Hæ
Þá er nú búið að ákveða hvenær má veiða rjúpuna en það er frá 1.11.2008 til 30.11. 2008 og þá á fimmtudögum,föstudögum,laugardögum og sunnudögum, og mælst er til að hver veiðimaður veiði ekki meira en 10 fugla.
Þetta er búin að vera mikil heimavika en ég var að jafna mig eftir smá aðgerð á spítala, bóndinn klikkaði í bakinu og Disa var hjá okkur í 3 nætur.Nú verð ég að fara að vera dugleg að labba en gangan hefur legið niðri hjá mér í dálítinn tíma vegna veikinda.
Svo fer ég á GPS námskeið til upprifjunar um mánaðarmótin þannig að það er alltaf eitthvað á döfinni.
Bara gaman framundan.
M