Jæja
Þá er nú hreindýraveiðinni lokið í ár og náðust all flest dýrin, en sögusagnir segja að meira hafi verið skotið á einu svæðann en heimilt var.
"Sagan segir", að á svæði 9 hafi eigendur tveggja jarða skotið öll þau dýr sem komu inn á þeirra lönd og selt þau til veitingastaðar í Reykjavík, ég heyrði að lögreglan hefði verið með eftirlit siðustu tvo dagana og stoppað menn og og skoðað afla, byssur og pappíra hjá veiðimönnum á þessu svæði.
Ég sendi fyrirspurn til Jóhanns hjá Hreindýraráði og sagði hann
"Veit ekki hvað er til í þessu en raddirnar eru háværar eins og stundum áður
- sendi upplýsingarnar sem ég fékk til mín áfram á lögfræðideildina hjá UST.
Ég hef engar forsendur sem starfsmaður Ust til að ákveða með rannsókn eða
húsleitarheimildir. - Þessi umræða er búin að vera í gangi alllengi. -
lögreglan hefur undanfarin ár verið beðin að efla eftirlit á þessu svæði
á/og eftir veiðitíma og eftirlitsmaður frá UST var hafður á svæðinu nú
síðustu daga á veiðitímanum
Skítt ef satt reynist.
M