Þá kom sprengjusérfræðingurinn í dag og skoðaði hjá mér skotin sem við fundum á hálendinu um daginn og staðfesti hann að um væri að ræða 30-06 og 50 cal. skot.
Í stóru kúlunni sagði hann að væri fosfór fram yfir miðja kúlu svo ég skildi ekkert vera að reyna að saga hana, til að skoða að innan. Fengum okkur svo kaffi og spjölluðum saman, hann er danskur og heitir Martin og er giftur íslenskri konu , þægilegur maður.
Sigurgeir er að moka sandinum sem kom í gær svo nú má fara að panta hellurnar.
Annars hefur dagurinn verið rólegur , ekkert nema borgarpólitíkin í fjölmiðlum, ekkert spennandi finnst mér, vona bara að nýji meirihlutinn haldi út kjörtímann!!!!!! og ekki orð um það meir
M