Við eyddum helginni upp í Sanddal í blíðskaparveðri, það var enginn í dalum utan okkar og Kalla og Hafrúnar, við borðuðum saman og höfðum bara gaman.
Svo fórum við upp á Króksháls að skoða aðstöðuna fyrir nýja GSM mastrið, það voru bara 2 álftir á Fiskivatni.Sigurgeir sló og ég reyndi að mála smá. Svo á heimleiðinni fórum við yfir Grjótháls og inn að Kvíum og að Helgavatni og þaðan í Örnólfsdal, þetta er mjög falleg leið sem liggur með Kjarránnni. Þegar við komum að Örnólfsdal rak Kalli augun í gamlan Volvo sem hann var að vinna á þegar hann byrjaði hjá símanum 1984 og var hann eins og smástrákur sem hafði fundið gullmola, og var hann myndaður við hræið skælbrosandi.
Frábær helgi
M