Velkomin á bloggið mitt Hér verður svona sitt lítið af ýmsum áhugamálum mínum. |
|
12.07.2008 00:35Rússagullið í Þórsmörkinni,myndirNú í vikunni vorum við á fjöllum og enduðum túrinn í Þórsmörk en þar var bongóblíða og komum við okkur vel fyrir í okkar kúlutjaldi og nutum fegurðarinnar þegar allt í einu birtast tvær þyrlur sem lentu við hliðina á okkur og skömmu síðar koma tveir stórir jeppar, annar þeirra var merktur LAX-Á, þarna reyndust vera á ferðinni Rúsneskir auðmenn sem höfðu verið í veiði með LAX-Á mönnum, höfðu þeir lent á toppi Heklu til að skála fyrir góðum veiðitúr til Íslands svo var farið með þá inn í Þórsmörk þar sem þeir snæddu luxus málsverð og drukku eðal vín með, eftir matinn var farið með þá í útsýnisflug yfir svæðið og jöklana og hurfu þeir okkur sjónum eftir það, LAX-Ár menn stoppuðu við tjaldið hjá okkur og báðust afsökunar á ónæðinu sem var fúslega veitt. Miklir menn Rússar!!! Annars áttum við mjög góða daga í sól og blíðu í Þórsmörkinni þar var ekki mikið um ferðamenn en þeir voru væntanlegir um helgina við gistum í tvær nætur. Kíktum svo á bústaðinn hjá Gulla og Björgu en þar var enginn heima, gróðurinn er aldeilis orðinn fínn hjá þeim. Þaðan var farið í Grímsnesið og skoðað húsið sem Sigga og Fúsi eru að spá í. Svo fórum við í Öndverðarnesið þar sem Árni vinnufélagi Sigurgeirs á bústað og var mjög vel tekið á móti okkur og var okkur boðið í kaffi og heimabakaðar kökur aldeilis flott.Þaðan drifum við okkur svo heim. M Flettingar í dag: 1101 Gestir í dag: 227 Flettingar í gær: 133 Gestir í gær: 22 Samtals flettingar: 344340 Samtals gestir: 30658 Tölur uppfærðar: 21.11.2024 14:21:09 |
Eldra efni
Nafn: María GunnarsdóttirFarsími: 8991904Tölvupóstfang: mariagunnars@gmail.comMSN netfang: mariabg@hi.isHeimilisfang: Ásakór 11Uppáhalds tónlist: Country, Cliff og íslensktUppáhalds matur: Villibráðclockhere Tenglar
|
© 2024 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is