Í dag er búið að vera milt og gott veður þó sólarlaust væri. Ég fór með Dísu í búðir og var hún að versla sér hjól fyrir sig og Andrés og fékk hún ágætis hjól á góðu verði á Vagnhöfða 8, og verða þau send norður til þeirra. Svo fóru þau Dísa og Helgi Þór með flugi heim í eftirmiðdaginn og gekk ferðin vel.
Svo nú tekur hversdagurinn við hjá mér á ný sem er ágætt líka.
Um helgina er búinn að vera töluverður gestagangur og var það bara mjög gaman.
M