Þetta var nú ágætis helgi, við fórum í sextugs afmæli til Heiðars og var boðið þar fyrst í mat og svo tertur á eftir allir saddir og sælir þetta var mjög huggulegt og gaman hjá þeim hjónakornum. Svo var árshátíð hjá Einari Halli og komu þau Ísól og hann með flugi og gistu hjá okkur, fóru svo aftur í gær norður
Ekkert fékk maður hreindýrið annað árið í röð , hvorugt okkar og er ég drulluspæld en Kalli fékk belju á svæði tvö og Jónatan tarf á tvö líka.
Ég fer bara í einhverjar aðrar veiðar þegar fer að líða á árið vonandi!
M