Þá er lélegustu rjúpnavertíð til 35 ára lokið og ekki var hægt að fara 2 síðustu dagana vegna veðurs, reyndar voru þeir fleiri dagarnir sem við komumst ekki en hinir. Aflinn þegar upp er staðið eru 26 fuglar og duga þeir okkur bara rétt í matinn yfir hátíðarnar, en sumir eru ver settir en við, sem fengu engan fugl. En til að ná þessum fuglum þurftum við að ganga frá birtingu til kvölds og komum stundum niður í bíl í svarta myrkri.
En nú tekur jólaundirbúningurinn við og er ég aðeins byrjuð að kaupa jólagjafir, svo keypti ég kengúrufille til að prufu matreiðslu, en ég fékk mér að kengúru þegar við vorum í Köben í vor en við ætlum þangað aftur um áramótin, sko bara gaman!!!! Svo er spurning hvað á að baka mikið?
M