Það er nú lítið að frétta á vesturvígstöðum núna, hálfgert skíta veður og ekki hægt að fara á rjúpu en ég ætla næstu helgi hvernig sem spáin verður. Veit um 3 sem eru norður á Skaga það verður gaman að heyra frá þeim. Fór í Smáralind í dag að kaupa mér borstofustóla, þetta eru nú meiri framkvæmdirnar sem þar eru ,svo eru bara opnaðar nýjar búðir og gatnakerfið er alveg sprungið, það verður gæfulegt eða hitt þó heldur að hugsa um jólatraffíkina, ég held ég fari bara eitthvað annað til að versla.
M