Við áttum notalega kvöldstund hjá Margréti og Jónatani og kom Maggí systir með okkur uppeftir.Var okkur boðið upp á myntute úr garðinum þeirra og var það mjög gott ,síðan var sest að snæðingi og var þar á borðum hreindýr með ýmsu lostæti eins og það gerist best t.d stikilber úr garðinum þeirra og hef ég ekki smakkað þau áður .
Var svo spjallað fram eftir kvöldi og í lokin vorum við leyst út með dýrindis perlum frá Kínaströnd, ekki dónalegt það. Bestu þakkir kæru hjón.
M