Frábært veður í dag.
Við ákváðum að það væri tilvalið að nota daginn til rjúpnatalningar eins og við gerum árlega á þessum tíma árs. Við vorum rétt komin upp að Úlfarsfelli þegar við sáum slatta af strákum (körlum)á dýru leikföngunum sínum og eyddu við næsta klukkutímanum í að horfa á þá á snjósleðum, bílum,fjórhjólum og motorhjólum og Svifflugvélum og var meiri háttar að sjá hvernig þeir fóru yfir Leirtjörnina en myndirnar tala því máli. Fórum síðan Hafravatnshringinn og sáum 5 rjúpur sem er mun meira en í fyrra en þá sáum við enga, en 11 árið á undan.
Fórum svo til Hrannar og fengum kaffi og pönnukökur og fínerý, breytingin á svefnherberginu er meiriháttar flott eins og allt heimilið.
Í gær átti bóndinn afmæli og kom fullt af fólki í kaffisopa það var mjög gaman.
M