Það var farið snemma á fætur í morgun og farið sem leið liggur Mosfellsheiði, Þingvelli, Lyngdalsheiði að Geysi og Gullfoss og sem leið liggur inn að Hagavatni og urðu nokkrir útlendingar á leið okkar, það var bjart og gott veður fórum bröttu brekkuna upp að vatninu og var gaman að koma á þessar slóðir. Fórum svo upp á Bláfellsháls og þaðan að Skálpanesi, en þar er þokkalegt hús og mikið af snjósleðum og jökladóti sem virðist bara vera geimt þarna. Fórum svo í Fremstaver og var fallegt þar víða,sáum álftir og gæsir, svo lá leið okkar í Reykjaskóg og var okkur boðið í kvöldmat í Siggubæ hjá Klöru,Sigga, Hrönn og Gunna og tengdó sátum þar frameftir en drifum okkur svo heim og vorum komin undir miðnættið.
heyrumst!!!!!!!!!!!