24.04.2007 18:19
Það er sóðalykt af dómi yfir lögreglumanninum á Akureyri sem mætti ölvaður á slysstað og akandi þar að auki, kallaði síðan út konu sína og var hún einnig drukkin á bíl.
Hvernig geta menn komist upp með svona lagað, hvað er að dómskerfinu okkar sem hleypir svona dómum í gegn og svo þar að auki fær maðurinn að halda áfram að starfa innan lögreglunnar bara færður til í starfi. Er þetta sú fyrirmynd sem við viljum sýna unga fólkinu okkar í dag allt í lagi keyra fullur ljúga fyrir dómi og komast upp með það.
Þetta er orðið ömurlegt dómskerfi í landinu okkar .