18.04.2007 22:33
Hér áður fyrr var alltaf djamm og gaman á þessu kvöldi, en nú er maður farin að reskjast og hættur öllum fíflalátum, en þó finnst mér að sjónvarpið mætti vera með skemmtiefni á þessu kvöldi, en svona er þetta allt er breytingum háð og maður verður bara að sætta sig við það. Fórum út að ganga eftir kvöldmat, það var fallegt veður en kalt 2°frost svo vetur og sumar frjósa saman að þessu sinni.